Körfubolti

Fullkomið og sögulegt kvöld hjá Chris Paul og þrjú lið fóru áfram í NBA í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Chris Paul gengur sigurreifur af velli eftir fjórða sigur Phoenix Suns á New Orleans Pelicans í nótt.
Chris Paul gengur sigurreifur af velli eftir fjórða sigur Phoenix Suns á New Orleans Pelicans í nótt. AP/Gerald Herbert

Þrjú einvígi kláruðust í nótt í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta þar sem Philadelphia 76ers, Phoenix Suns og Dallas Mavericks tryggðu sér öll sæti í undanúrslitum deildanna. Toronto Raptors, New Orleans Pelicans og Utah Jazz eru aftur á móti komin í sumarfrí.

Chris Paul skrifaði söguna þegar Phoenix Suns vann 115-109 sigur á New Orleans Pelicans en hann gerði það með því að eiga fullkomnasta kvöldið í sögu úrslitakeppninnar. Paul hitti nefnilega úr öllum fjórtán skotum sínum í leiknum.

Enginn hefur hitt úr jafnmörgum skotum í einum leik í úrslitakeppni án þess að klikka en Paul var með 33 stig og 8 stoðsendingar í leiknum. Phoenix Suns liðið þurfti því á leiðtoga sínum að halda því liðið var tíu stigum undir í hálfleik.

Það munaði lika mikið um það að Devin Booker gat spilað á ný eftir níu daga fjarveru vegna tognunar aftan í læri í leik tvö. Hann skoraði 13 stig á 32 mínútum.

Miðherjinn Deandre Ayton var síðan með 22 stig en hann nýtti 10 af 12 skotum sínum. Brandon Ingram var atkvæðamestur hjá Pelíkönunum með 21 stig og 11 stoðsendingar.

Joel Embiid og James Harden voru báðir öflugir þegar Philadelphia 76ers burstaði Toronto Raptors 132-97 á útivelli og tryggði sér einvígi á móti Miami Heat í undanúrslitum Austurdeildarinnar.

Embiid var með 33 stig og 10 fráköst en Harden bætti við 22 stig og 15 stoðsendingum. Philadelphia kom í 3-0 í einvíginu en hafði tapað tveimur leikjum í röð.

Það voru fleiri að spila vel hjá 76ers því Tyrese Maxey skoraði 25 stig og Tobias Harris var með 19 stig og 11 fráköst. Chris Boucher var stigahæstur hjá Toronto með 25 stig og 10 fráköst en Pascal Siakam skoraði 24 stig.

Luka Doncic og Jalen Brunson voru báðir með 24 stig þegar Dallas Mavericks tryggði sér sigur í einvíginu á móti Utah Jazz með 98-96 útisigri. Brunson skoraði fjögur síðustu stig Dallas í leiknum og Utah fékk eitt skot í lokin en klikkaði.

Auk stiganna var Doncic líka með 9 fráköst, 8 stoðsendingar, 2 varin skot og 2 stolna bolta. Spencer Dinwiddie skoraði 19 stig og Dorian Finney-Smith var með 18 stig. Donovan Mitchell var atkvæðamestur hjá Utah með 23 stig, 9 stoðsendingar og 8 fráköst en Bojan Bogdanovic skoraði 19 stig.

Dallas Mavericks og Phoenix Suns munu mætast í undanúrslitum Vesturdeildarinnar.

  • Úrslitin í úrslitakeppni NBA í nótt:
  • New Orleans Pelicans - Phoenix Suns 109-115
  • Toronto Raptors - Philadelphia 76ers 97-132
  • Utah Jazz - Dallas Mavericks 96-98
  • -
  • Staðan í einvígunum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar núna:
  • Austurdeildin:
  • (1. sæti) Miami Heat 4-1 Atlanta Hawks (8. sæti) BÚIÐ
  • (2) Boston Celtics 4-0 Brooklyn Nets (7) BÚIÐ
  • (3) Milwaukee Bucks 4-1 Chicago Bulls (6) BÚIÐ
  • (4) Philadelphia 76ers 4-2 Toronto Raptors (5) BÚIÐ
  • Vesturdeildin:
  • (1. sæti) Phoenix Suns 4-2 New Orleans Pelicans (8. sæti) BÚIÐ
  • (2) Memphis Grizzlies 3-2 Minnesota Timberwolves (7)
  • (3) Golden State Warriors 4-1 Denver Nuggets (6) BÚIÐ
  • (4) Dallas Mavericks 4-2 Utah Jazz (5) BÚIÐ
  • -
  • Undanúrslit deildanna í úrslitakeppni NBA-deildarinnar:
  • Austurdeildin:
  • (1. sæti) Miami Heat - Philadelphia 76ers (4. sæti)
  • (2) Boston Celtics - Milwaukee Bucks (3)
  • Vesturdeildin:
  • (1) Phoenix Suns - Dallas Mavericks (4)
  • (2) Memphis Grizzlies/Minnesota Timberwolves - Golden State Warriors (3)

Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×