Íslenskunám á vinnutíma fyrir starfsfólk Jóhanna Pálsdóttir skrifar 3. maí 2022 09:00 Viðreisn í Kópavogi telur að það séu sameiginlegir hagsmunir sveitarfélagsins og starfsmanna sem vinna í leik- og grunnskólum bæjarins að styðja við íslenskunám þeirra með því að bjóða upp á íslenskukennslu á vinnustað á starfstíma fyrir þau sem slíkt vilja þiggja. Stæði starfsfólki þá til boða að sækja sér íslenskukennslu á vinnutíma og fá þar með greitt fyrir námið í stað þess að þurfa að greiða fyrir það. Þau sem hafa starfað á leik- og grunnskólastiginu, átt þar aðstandendur eða þekkja til, vita að störfunum fylgir talsvert álag. Þá ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að illa hefur gengið að manna stöður í leikskólum landsins. Það er því kappsmál fyrir vinnuveitandann að tryggja gott starfsumhverfi og möguleika starfsfólksins til að þroskast og þróast í starfi. Í leik- og grunnskólum bæjarins starfar fjöldi fólks af erlendu bergi og færni þeirra í íslensku spannar allt litrófið. Markmið þeirra sem leita hingað eru enn fremur jafn fjölbreytt og einstaklingarnir. Sumir hafa hug á skjóta hér rótum á meðan aðrir stefna ekki að langdvöl. Hvort heldur sem er ættum við að miða að því marki að gera dvöl þeirra hér sem besta. Þau okkar sem búið hafa á erlendri grund þekkja það að aðlögun að nýjum siðum og menningu gerist ekki að sjálfu sér. Þar er Ísland engin undantekning, og mögulega er þetta jafnvel erfiðara hér. Lykillinn felst oftar en ekki í að ná tökum á tungumálinu. Þótt íslenskan verði seint talin aðgengileg reynist einhverjum það auðvelt á meðan aðrir ströggla aftur á móti við það. Þar teljum við í Viðreisn að tækifæri séu til staðar til að auðvelda það verkefni. Ávinningur fyrir öll Ávinningurinn er augljós, fyrir sveitarfélagið, starfsfólkið sjálft og samfélagið í heild. Vald á tungunni auðveldar starfsfólki bæði samskipti við nemendur skólanna, annað starfsfólk vinnustaðarins og fólk sem verður á vegi þess í leik og dagsins amstri. Sveitarfélagið fær starfskraft sem aukið hefur við færni sína í tungunni og ekki þarf að fjölyrða um hagnað samfélagsins af slíku. Sum sé, allir vinna. Tillaga Viðreisnar í Kópavogi er að starfsmönnum í grunn- og leikskólum bæjarins verði gefinn kostur á íslenskukennslu á vinnutíma. Í grunnskólunum verði nýttir til þess þeir kennarar sem starfa í viðkomandi grunnskóla og eru hæfir til að sinna þeirri kennslu. Hver grunnskóli ætti auðveldlega að geta útfært innanhúss það verkefni að veita íslenskukennslu á vinnutíma. Í hverjum skóla eru menntaðir kennarar sem geta sinnt þessari kennslu. Þeir eru vanir að mæta nemendum á mismunandi getustigi og því ætti útfærslan í senn að vera einföld og ekki til þess fallin að vera kostnaðarsöm. Útfærslan í leikskólum kann að vera flóknari en að okkar mati vel framkvæmanleg. Við berum fullt traust til stjórnenda leikskólanna og starfsmanna menntasviðs bæjarins til að útfæra þetta verkefni svo það falli sem best að starfsemi viðkomandi leikskóla og mæti þeim þörfum sem þar eru fyrir íslenskunám starfsmanna sem vildu þiggja slíkt. Við teljum að útfærslan eigi ekki að verða kostnaðarsöm enda mögulega hægt að nýta starfsfólk í þetta sem þegar starfar hjá sveitarfélaginu. Fyrstu misserin væri um tilraunaverkefni að ræða en gefi það góða raun mætti kanna að útvíkka það og útfæra þannig að öllu starfsfólki bæjarins, sem hefur hug á, gefist kostur á að bæta færni sína í íslenskri tungu, á fullum launum í þokkabót. Með því móti væri verið að fjárfesta til framtíðar í mannauði bæjarins, bænum, starfsfólki og nemendum til heilla. Að koma þessu í gegn á næsta kjörtímabili verður eitt af báráttumálum Viðreisnar í Kópavogi. Höfundur er grunnskólakennari og skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Nauka języka islandzkiego dla pracowników w godzinach pracy Viðreisn w Kópavogur uważa, że wspólną korzyścią, zarówno dla gminy jak i osób pracujących w przedszkolach i szkołach, byłoby wspieranie nauczania języka islandzkiego poprzez zaoferowanie kursów w miejscu i w trakcie czasu pracy osobom, które z takiej oferty chciałyby skorzystać. Gdyby możliwość taka została pracownikom zaoferowana, mogliby oni uczestniczyć w zajęciach z języka islandzkiego w czasie pracy i mieliby wówczas płacone za czas kursu zamiast - jak dotychczas, gdy musieli za kurs płacić. Osoby, które pracowały w przedszkolach i szkołach lub mają bliskich i znajomych tam pracujących wiedzą, że praca ta związana jest ze znacznym stresem. Wszyscy zdajemy sobie sprawę, jak trudno jest znaleźć osoby do pracy w przedszkolach. Dla pracodawcy jest to nie lada wyzwanie, powinien zatem zapewnić przyjazne środowisko w miejscu pracy oraz możliwości rozwoju i podnoszenia kompetencji zawodowych. W przedszkolach i szkołach w Kópavogur pracuje wiele osób obcego pochodzenia, a ich kompetencje w zakresie języka islandzkiego obejmują całe spektrum takich umiejętności. Plany osób, które przybywają tutaj są również zróżnicowane, tak jak różne są osoby. Niektórzy są zainteresowani zapuszczeniem tutaj korzeni, podczas gdy inni nie mają zamiaru zostać na dłużej. Niezależnie od tego jaki jest ich cel, powinniśmy zadbać o to, aby ten pobyt był jak najlepszym doświadczeniem. Ci z nas, którzy mieszkali zagranicą wiedzą, że adaptacja do nowych zwyczajów i kultury nie dzieje się sama z siebie. Islandia nie jest tu żadnym wyjątkiem, a może nawet jest to tutaj trudniejsze. Kluczem jest najczęściej opanowanie języka. Chociaż islandzki trudno zaliczyć do łatwych, niektórym jednak nie wydaje się trudny, podczas gdy inni muszą z nim się zmagać dłużej. Viðreisn uważa, że istnieją możliwości, by w miarę łatwo zrealizować naszą propozycję. Z korzyścią dla wszystkich Korzyść jest oczywista, zarówno dla gminy, pracowników i społeczności jako całości. Opanowanie języka ułatwia pracownikom zarówno kontakty z uczniami, innymi pracownikami w miejscu pracy oraz z ludźmi, którzy znajdą się na ich drodze w zabawie i w zwyczajnych codziennych sytuacjach. Gmina wzbogaci się o pracownika, który poszerzył swoje kompetencje w zakresie języka islandzkiego, nie ma zaś potrzeby przypominania o korzyściach wynikających z tego dla całej społeczności. Wszyscy na tym zyskujemy. Propozycja, którą przedstawia Viðreisn w Kópavogur, zakłada umożliwienie pracownikom szkół podstawowych i przedszkoli uczestniczenia w kursach języka islandzkiego, w godzinach pracy. W szkołach podstawowych będzie można wykorzystać w tym celu nauczycieli, którzy pracują w danej szkole i mają kompetencje, by takie zajęcia prowadzić. Każda szkoła powinna bez problemu zrealizować kursy islandzkiego w godzinach pracy we własnym zakresie, ponieważ są tam kompetentni nauczyciele, którzy mogliby to robić. Mają doświadczenie w pracy z uczniami na różnym poziomie umiejętności i w związku z tym realizacja tych zajęć nie powinna nastręczać trudności i raczej nie powinna być kosztowna. Wdrożenie projektu w przedszkolach może być nieco bardziej skomplikowane, ale w naszej ocenie do wykonania. Mamy pełne zaufanie do kierownictwa przedszkoli i pracowników miejskiego wydziału edukacji, aby powierzyć im realizację projektu i tym samym dać możliwość dostosowania działań zależnie od sytuacji w danym przedszkolu, aby wyjść naprzeciw oczekiwaniom pracowników, którzy byliby zainteresowani ofertą nauki języka islandzkiego. Uważamy, że wdrożenie projektu nie powinno być kosztowne, ponieważ można w tym celu wykorzystać personel już zatrudniony przez gminę. W początkowym okresie byłby to projekt pilotażowy, lecz jeśli się sprawdzi, można by rozważyć rozszerzenie go tak, aby wszyscy pracownicy miasta, którzy byliby zainteresowani, mieli możliwość poprawienia swoich umiejętności w zakresie języka islandzkiego, otrzymując jednocześnie pełne wynagrodzenie. W ten oto sposób można inwestować w przyszłość i nasze zasoby ludzkie, z korzyścią dla miasta, pracowników i uczniów. Wdrożenie tego projektu w następnej kadencji będzie jednym z głównych celów Viðreisn w Kópavogur. Autorka jest nauczycielem szkoły podstawowej i zajmuje 3 miejsce na liście Viðreisn w Kópavogur. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Kópavogur Viðreisn Skoðun: Kosningar 2022 Sveitarstjórnarkosningar 2022 Íslenska á tækniöld Innflytjendamál Mest lesið „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek Skoðun Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson Skoðun Reglurnar eru óumsemjanlegar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun „Eru ekki allir pínu einhverfir í dag?“ Andrea Ólafsdóttir skrifar Skoðun Betri leið til að velja keppendur inn á Ólympíuleika Pawel Bartoszek skrifar Skoðun Tilgangur atvinnurekstrarbanns Lárus Sigurður Lárusson skrifar Skoðun Að verða fórnarlamb íslenskra skattyfirvalda Arnar Pálsson skrifar Skoðun Loftslagsávinningur Coda Terminal er gífurlegur Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Bóluefni eða veirur Ágúst Kvaran skrifar Skoðun Skaðinn í leyndri meðferð á heimilum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Af glyðrugangi eftirlitsstofnana Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Linnulaus þjáning íbúa á Gaza Hrafnhildur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Munurinn á þjóðerniskennd versus sálernis þarfar upplifun Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Svifhrifavaldar Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvernig og hvenær en ekki hvort Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Tilfinningalegur athyglisbrestur og heilbrigt tilfinningalíf Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Reglurnar eru óumsemjanlegar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 3.200 aumingjar (mín skoðun) Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ber endurhæfing ávöxt? skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm skrifar Skoðun Foreldrar á 4. vaktinni Sara Rós Kristinsdóttir,Lóa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Norður-Kórea er víða Ingvar Smári Birgisson skrifar Skoðun Það getur verið gott að búa til steind Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Uppskeruhátíð öldrunarfræða á Norðurlöndum Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Gullverðlaun í mengun Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Gen og glæpir Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun 10 tæknilegir yfirburðir rafbíla Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Um vanda stúlkna í skólum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Land, borgir og samgöngur Guðjón Sigurbjartsson skrifar Sjá meira
Skoðun Verða rangfærslur að sannleika, ef þær eru endurteknar nógu oft!? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Forseti ÍSÍ hvattur til að hefja tiltektina í eigin starfsemi Sigurður G. Guðjónsson skrifar
Skoðun Það er víst hægt að semja um aðildarskilmála! Mörg dæmi sanna það! Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Orðatónar: Aukinn orðaforði og lesskilningur barna með íslenskri tónlist Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar