Það kom eflaust mörgum á óvart þegar Ísland komst áfram upp úr fyrri undanriðli Eurovision í úrslitin í gær. Systrum hafði ekki verið spáð framgöngu í úrslitin í veðbönkum en klukkutímana fyrir undankeppnina sagði spá veðbankanna að 37 prósent líkur væru á því að systurnar kæmust í úrslitin.
Systur sögðu sjálfar í samtali við Vísi í gær að það hafi komið þeim á óvart þegar nafn Íslands var kallað af kynnunum við upplistun þeirra landa sem komust í úrslit í gærkvöldi.
„Já, þetta kom á óvart. Á Íslandi, þegar einhver segir manni nógu oft að maður sé ekki að fara að komast í gegn, þá er maður bara ó, ókei. Svo bara allt í einu, what? Við komumst í gegn,“ sögðu systur í samtali við fréttastofu eftir að niðurstöðurnar voru kynntar í gær.
Átján lönd munu keppa um tíu sæti í úrslitum á seinna undanúrsitakvöldinu á morgun. Þar er Svíþjóð, Póllandi og Ástralíu spáð bestu gengi en Rúmenía, Ísrael, Írland, Georgía, Svartfjallaland og Norður-Makedónía talin ólíkleg til framgöngu. San Marínó og Malta eru í baráttusætum.
Úrslitin fara svo fram í Eurovision-höllinni í Tórínó á laugardag þar sem tuttugu og fimm lönd keppa til úrslita. Fyrir liggur að Armenía, Frakkand, Þýskaland, Holland, Noregur, Portúgal, Spánn, Sviss, Úkraína, Ítalía, Grikkland, Ísland, Litháen, Moldóva og Bretland muni keppa í úrslitum en í ljós kemur á morgun hvaða tíu lönd bætast við.

Samkvæmt veðbönkum eru helmingslíkur á að Úkraína beri sigur úr bítum í keppninni og Ítalía talin næstsigurstranglegust með 12 prósenta vinningslíkur. Þar á eftir koma Bretland og Svíþjóð. Ísland er nú í 23. sæti í veðbönkum.