Innlent

Mun leiða starfs­hóp um for­varnir og við­brögð við á­föllum í lífi barna

Atli Ísleifsson skrifar
Brynja Dan Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins.
Brynja Dan Gunnarsdóttir er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins. Stjr

Brynja Dan Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, mun leiða sérstakan starfshóp Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra um forvarnir og viðbrögð við áföllum í lífi barna.

Frá þessu segir á vef mennta-og barnamálaráðuneytisins. Segir að hlutverk starfshópsins sé að kortleggja aðstæður sem líklegar séu til þess að valda alvarlegu áfalli í lífi barns eða aðstandanda þess.

„Starfshópurinn mun greina þjónustuþörf og nauðsynleg úrræði sem gætu dregið úr líkum á áföllum eða áhrifum áfalla og koma með tillögur að úrbótum þvert á þjónustukerfi. Vinnan er þáttur í innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Rannsóknir sýna að áföll í æsku hafa forspárgildi um líkamlega og andlega heilsu síðar á ævinni. Börn sem upplifa áföll í æsku eru m.a. í aukinni áhættu er varðar geðrænan vanda, áhættuhegðun, aukna lyfjanotkun og líkamlega sjúkdóma á fullorðinsárum. Áföll foreldra og náinna aðstandenda sem valda börnum ójafnvægi eða vanlíðan geta haft áhrif á getu þeirra til að sinna barni og bregðast við líðan þess og þörfum. Mikilvægt er að huga að börnunum samhliða forvörnum og fyrirbyggjandi aðgerðum. Skoða þarf hvernig hægt er að stíga inn með markvissri og viðeigandi aðstoð börn og fjölskyldur þeirra þegar áfall hefur eða er að fara að eiga sér stað. Með því er hægt að lágmarka þau alvarlegu og langvarandi áhrif sem áfall getur haft og veita börnum og aðstandendum verkfæri til þess að glíma við erfiðar aðstæður.

Brynja, sem er framkvæmdastjóri og varaþingmaður Framsóknarflokksins, hefur mikla reynslu af málefnum barna og situr m.a. í stjórnum Barnaheilla og Íslenskrar ættleiðingar,“ segir í tilkynningunni.

Ennfremur segir að starfshópurinn verði skipaður fagfólki, fulltrúum þeirra ráðuneyta og annarra aðila sem komi að þjónustu við börn. Áhersla verði á víðtækt samráð við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og er gert ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum fyrir lok árs 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×