Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. maí 2022 16:23 Skýrslutökur yfir börnum sem grunur er um að brotið hafi verið gegn fara fram í Barnahúsi. Tilgangurinn er að skapa öruggara umhverfi fyrir börn til að tjá sig um erfið mál. Vísir/Vilhelm Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. DV greindi frá því í gær að hinn grunaði heitir Brynjar Joensen Creed og hefur fréttastofa fengið það staðfest. Brynjar sætir ákæru fyrir brot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Meint brot hans gegn stúlkunum sem ákært er fyrir eru sautján. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum en þinghald í málinu, líkt og flestum kynferðisbrotamálum, er lokað. Hálft ár í gæsluvarðhaldi Ríkisútvarpið greindi frá því í hádeginu í dag að lögregla sé með fjölmörg brot til viðbótar til rannsóknar. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir það í samtali við fréttastofu. Brynjar hefur setið í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði síðan í nóvember eða í um hálft ár. Kolbrún útskýrir í samtali við fréttastofu að héraðssaksóknari geti aðeins haldið sakborningi í gæsluvarðhaldi í tólf vikur án ákæru. Því hafi aðeins verið gefin út ákæra fyrir hluta þeirra brota sem séu til rannsóknar. Vísir fjallaði ítarlega um efni ákærunnar í vikunni. Fjölmiðlar komust ekki á snoðir um málið, sem er afar umfangsmikið, fyrr en á þriðjudag þegar Vísir greindi frá efni ákærunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu kærði lögmaður Brynjars engan gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum til Landsréttar. Landsréttur birtir jafnan niðurstöður í slíkum kærumálum á vef sínum nema rannsóknarhagsmunir komi í veg fyrir slíka birtingu. Nauðgun án þess að vera á staðnum Brynjar er ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot og kynferðislega áreitni - allt gagnvart börnum. Athygli vekur að karlmaðurinn er ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í krafti yfirburðastöðu sinnar vegna aldurs- og þroskamunar auk loforða um gjafir fengið stúlkurnar til að stunda kynferðislegar athafnir, taka upp á myndband og senda sér. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur ekki áður reynt á slíka túlkun á 1. málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga sem fjallar um nauðgun. 194. grein almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Það telst einnig nauðgun og varðar sömu refsingu og mælt er fyrir um í 1. mgr. að beita blekkingum eða notfæra sér villu viðkomandi um aðstæður eða að notfæra sér geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök, eða þannig er ástatt um hann að öðru leyti að hann getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru stúlkurnar sem karlmaðurinn er ákærður fyrir að hafa brotið á búsettar á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar. Í Kompás árið 2020 var fjallað um kynferðisbrot gegn börnum á netinu. Aukið álag í Barnahúsi vegna brota gegn börnum Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu sem Barnahús heyrir undir, segir álagið í Barnahúsi hafa aukist mjög árið 2021. Skýrslur af börnum í kynferðisbrotamálum eru teknar í Barnahúsi. Ólöf segir að þau hafi fundið fyrir verulega auknu álagi árið 2021 vegna Covid-19 faraldurins og fjölda mála þar sem grunur leikkur á um brot gegn börnum. „Það eru svo mörg börn á bak við hvern geranda,“ segir Ólöf. Barnahús hafi fengið Covid-styrk frá ráðuneytinu og getum ráðið í eitt og hálft stöðugildi sérfræðinga hjá Barnahúsi. Fyrir voru sex sérfræðingar svo um 25% aukningu er að ræða. Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11. maí 2022 12:50 Mest lesið Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Innlent Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Innlent Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent „Öfga vinstri brjálæðingur“ og „Lygna-Kamala“ Erlent Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Erlent Lýsa yfir hættustigi Innlent „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á Miklubraut Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt „Þurfum að grípa inn í ekki seinna en strax“ Þjórsárdalur heillar og synt í Gjánni Aftengja sig Pírataspjallinu Eldur í gaskút á Egilsgötu Ekki fallist á að dyrabjallan sé að fylgjast með nágrannanum Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði Kviknaði í bíl í miðborginni Myndlistaskólinn yfirgefur JL-húsið Pósturinn varar við netþrjótum Færa varðturninn í nýjustu sundlaug Reykjavíkur Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla „Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Rýna ekki frekar í þyrlubjörgun við Fljótavík Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Einar býður Sunnu í kaffi og vill ræða áburð um karlrembu Margt sem kann að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Meðalævilengd Íslendinga styttist Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Sjá meira
DV greindi frá því í gær að hinn grunaði heitir Brynjar Joensen Creed og hefur fréttastofa fengið það staðfest. Brynjar sætir ákæru fyrir brot gegn fimm stúlkum á grunnskólaaldri. Meint brot hans gegn stúlkunum sem ákært er fyrir eru sautján. Aðalmeðferð fór fram í Héraðsdómi Reykjaness á dögunum en þinghald í málinu, líkt og flestum kynferðisbrotamálum, er lokað. Hálft ár í gæsluvarðhaldi Ríkisútvarpið greindi frá því í hádeginu í dag að lögregla sé með fjölmörg brot til viðbótar til rannsóknar. Kolbrún Benediktsdóttir varahéraðssaksóknari staðfestir það í samtali við fréttastofu. Brynjar hefur setið í gæsluvarðhaldi á Hólmsheiði síðan í nóvember eða í um hálft ár. Kolbrún útskýrir í samtali við fréttastofu að héraðssaksóknari geti aðeins haldið sakborningi í gæsluvarðhaldi í tólf vikur án ákæru. Því hafi aðeins verið gefin út ákæra fyrir hluta þeirra brota sem séu til rannsóknar. Vísir fjallaði ítarlega um efni ákærunnar í vikunni. Fjölmiðlar komust ekki á snoðir um málið, sem er afar umfangsmikið, fyrr en á þriðjudag þegar Vísir greindi frá efni ákærunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu kærði lögmaður Brynjars engan gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum til Landsréttar. Landsréttur birtir jafnan niðurstöður í slíkum kærumálum á vef sínum nema rannsóknarhagsmunir komi í veg fyrir slíka birtingu. Nauðgun án þess að vera á staðnum Brynjar er ákærður fyrir nauðgun, kynferðisbrot og kynferðislega áreitni - allt gagnvart börnum. Athygli vekur að karlmaðurinn er ákærður fyrir nauðgun með því að hafa í krafti yfirburðastöðu sinnar vegna aldurs- og þroskamunar auk loforða um gjafir fengið stúlkurnar til að stunda kynferðislegar athafnir, taka upp á myndband og senda sér. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur ekki áður reynt á slíka túlkun á 1. málsgrein 194. greinar almennra hegningarlaga sem fjallar um nauðgun. 194. grein almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Það telst einnig nauðgun og varðar sömu refsingu og mælt er fyrir um í 1. mgr. að beita blekkingum eða notfæra sér villu viðkomandi um aðstæður eða að notfæra sér geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök, eða þannig er ástatt um hann að öðru leyti að hann getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru stúlkurnar sem karlmaðurinn er ákærður fyrir að hafa brotið á búsettar á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á Suðurnesjum er með málið til rannsóknar. Í Kompás árið 2020 var fjallað um kynferðisbrot gegn börnum á netinu. Aukið álag í Barnahúsi vegna brota gegn börnum Ólöf Ásta Farestveit, forstjóri Barna- og fjölskyldustofu sem Barnahús heyrir undir, segir álagið í Barnahúsi hafa aukist mjög árið 2021. Skýrslur af börnum í kynferðisbrotamálum eru teknar í Barnahúsi. Ólöf segir að þau hafi fundið fyrir verulega auknu álagi árið 2021 vegna Covid-19 faraldurins og fjölda mála þar sem grunur leikkur á um brot gegn börnum. „Það eru svo mörg börn á bak við hvern geranda,“ segir Ólöf. Barnahús hafi fengið Covid-styrk frá ráðuneytinu og getum ráðið í eitt og hálft stöðugildi sérfræðinga hjá Barnahúsi. Fyrir voru sex sérfræðingar svo um 25% aukningu er að ræða.
194. grein almennra hegningarlaga Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef beitt er ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Það telst einnig nauðgun og varðar sömu refsingu og mælt er fyrir um í 1. mgr. að beita blekkingum eða notfæra sér villu viðkomandi um aðstæður eða að notfæra sér geðsjúkdóm eða aðra andlega fötlun manns til þess að hafa við hann samræði eða önnur kynferðismök, eða þannig er ástatt um hann að öðru leyti að hann getur ekki spornað við verknaðinum eða skilið þýðingu hans.
Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11. maí 2022 12:50 Mest lesið Loftefni hrundi í húsi sem fæst ekki uppkeypt Innlent Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Innlent Lögreglubíll og pallbíll sennilega ónýtir eftir harðan árekstur Innlent Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“ Innlent „Öfga vinstri brjálæðingur“ og „Lygna-Kamala“ Erlent Lögreglumaður traðkaði á höfði manns Erlent Lýsa yfir hættustigi Innlent „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla Innlent Skákar Trump í skoðanakönnun Erlent Hraunflæði það hratt að ekki yrði hlaupið undan því Innlent Fleiri fréttir Tveir fluttir á bráðamóttöku eftir árekstur á Miklubraut Ósáttur með hótelið, golfvellina og matinn en fær ekkert endurgreitt „Þurfum að grípa inn í ekki seinna en strax“ Þjórsárdalur heillar og synt í Gjánni Aftengja sig Pírataspjallinu Eldur í gaskút á Egilsgötu Ekki fallist á að dyrabjallan sé að fylgjast með nágrannanum Ekki á því að yfirgefa Grindavík endanlega Milljarðs tap Play og götulist í Hafnarfirði Kviknaði í bíl í miðborginni Myndlistaskólinn yfirgefur JL-húsið Pósturinn varar við netþrjótum Færa varðturninn í nýjustu sundlaug Reykjavíkur Dagbjört dæmd í tíu ára fangelsi fyrir líkamsárás „Orðlaus af reiði“ yfir óboðlegu leikskólahúsnæði í Ármúla „Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Rýna ekki frekar í þyrlubjörgun við Fljótavík Útkallið reyndist vera tóm vitleysa Einar býður Sunnu í kaffi og vill ræða áburð um karlrembu Margt sem kann að skýra fjölgun tilkynninga til barnaverndar Hættustig í Grindavík og veiklulegur Biden „Hvað ertu að gera í þessum karlrembuflokki?“ Meðalævilengd Íslendinga styttist Sluppu furðuvel frá heimsókn hesta á golfvöllinn Segir Menntamálastofnun ekki hafa ráðið við stafræn samræmd próf Ágreiningur um kött og hótanir gegn börnum Fyrirvari fyrir næsta gos gæti verið nokkrar mínútur Kona grunuð um að verða sex ára syni sínum að bana sögð sakhæf „Okkur þykir mjög miður að þetta hafi gerst“ Öllu gríni fylgi alvara Sjá meira
Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. 11. maí 2022 12:50