Lífið

Kourtney Kardashian og Travis Barker ganga í það heilaga á Ítalíu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Kourtney Kardashian og Kylie Jenner snæða hádegisverð ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum á San Fruttuoso.
Kourtney Kardashian og Kylie Jenner snæða hádegisverð ásamt öðrum fjölskyldumeðlimum á San Fruttuoso. Getty/GC Images/NINO

Kourtney Kardashian og rokkarinn Travis Barker ganga í það heilaga á Ítalíu um helgina og öll Kardashian-fjölskyldan er að sjálfsögðu mætt á staðinn og farin að deila myndum af hátíðarhöldunum með milljónum fylgjenda sinna á samfélagsmiðlum.

Brúðkaupshelgin hófst með kvöldverði á veitingastaðnum Ristorante Puny í gærkvöldi en parið mun ganga í það heilaga í Castello Brown, 16. aldar kastala í strandbænum Portofino.

Fjölskyldan á leið í hádegismat í dag.Getty/GC Images/NINO

Þetta mun reyndar verða þriðja brúðkaup Kardashian og Barker en þau voru formlega og löglega gift í Santa Barbara síðastliðinn sunnudag og höfðu þar áður látið splæsa sig saman í gamni í Las Vegas.

Kourtney og Travis á leið í kvöldmat í gær, ásamt börnum sínum og North West, dóttur Kim Kardashian og Kanye West.Getty/GC Images/NINO

Kardashian og Barker voru góðir vinir í mörg ár áður en ástin blómstraði. Þau eiga bæði börn fyrir en eru sögð vilja eignast eitt saman og slúðurmiðlar vestanhafs hafa gert úr því skóna að Kourtney sé mögulega ólétt nú þegar. 

Við seljum það ekki dýrara en við keyptum það...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.