Innlent

Sigríður nýr forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sigríður tekur við starfinu 1. október næstkomandi.
Sigríður tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Aðsend

Sigríður Gunnarsdóttir mun taka við sem forstöðumaður Rannsókna- og skráningarseturs Krabbameinsfélagsins þann 1. október næstkomandi. Hún tekur við starfinu af Laufeyju Tryggvadóttur.

Sigríður er hjúkrunarfræðingur að mennt, lauk klínísku meistaranámi í krabbameinshjúkrun frá University og Wisconsin Madison árið 2000 og doktorsprófi í hjúkrunarfræði frá sama skóla árið 2004. Frá árinu 2012 hefur Sigríður starfað sem framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala þar sem hún hefur leitt faglega þróun hjúkrunar og byggt upp og eflt gæða- og umbótastarf, menntun, vísindi og starfsþróun.

Samhliða starfi sínu hefur hún gegnt starfi prófessors í krabbameinshjúkrun við Háskóla Íslands frá árinu 2017. Sigríður hefur stýrt rannsóknarverkefnum sem hlotið hafa styrki úr rannsóknar- og samkeppnissjóðum bæði hér á landi og erlendis og birt fjölda vísindagreina í ritrýndum tímaritum.

Sigríður hefur verið virk í starfi Krabbameinsfélags Íslands en hún átti sæti í stjórn Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins frá stofnun árið 2015 og var formaður stjórnar frá 2016 til 2021.

„Við hjá Krabbameinsfélaginu eru mjög ánægð með að vera búin að fá Sigríði í hópinn. Hún verður mjög góður liðsauki við þann góða hóp sérfræðinga sem starfar hjá Rannsókna- og skráningarsetri félagsins,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins. 

„Sigríður fær það hlutverk að þróa starf setursins áfram í takt við áherslur félagsins, byggt á þeim góða grunni sem þar er fyrir.“

Sigríður segir það vera mikið tilhlökkunarefni að ganga til liðs við félagið en hún þekkir starf félagsins ágætlega. 

„Stórar áskoranir blasa við í framtíðinni, vegna mjög aukins fjölda krabbameinstilvika og fjölgunar lifenda. Ég tel mjög mikilvægt að allir leggist á eitt við að skapa hér á landi fyrirmyndaraðstæður fyrir fólk með krabbamein auk þess að vinna gegn krabbameinum. Krabbameinsfélagið og rannsóknir þess gegna þar lykilhlutverki,“ segir Sigríður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×