Sport

Dag­skráin í dag: Sæti á HM í boði, Úr­slita­ein­vígi NBA-deildarinnar, spænski körfu­boltinn og golf

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úkraína getur tryggt sér sæti á HM í fótbolta í dag með sigri á Wales.
Úkraína getur tryggt sér sæti á HM í fótbolta í dag með sigri á Wales. getty

Það er nóg af stórum viðburðum á dagskrá Stöðvar 2 Sport í dag. Sæti á HM í fótbolta sem fer í Katar er í boði og úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar heldur áfram.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 15.50 hefst útsending frá leik Wales og Úkraínu. Sigurvegarinn vinnur sér inn sæti á HM sem fram fer í Katar undir lok árs. Ef Úkraínu tekst það er um eitthvað ótrúlegasta íþróttaafrek síðari ára að ræða.

Klukkan 23.30 hefst upphitun fyrir annan leik Boston Celtics og Golden State Warriors. Leikurinn sjálfur hefst klukkan 00.00. Staðan í einvíginu er 1-0 Boston í vil.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 16.30 hefst Memorial-mótið í golfi en það er hluti af PGA-mótaröðinni.

Stöð 2 Golf

Klukkan 11.00 er Opna Evrópumótið á dagskrá en það er hluti af DP World-mótaröðinni. Klukkan 17.00 er US Opna kvenna mótið á dagskrá.

Stöð 2 E-Sport

Klukkan 17.00 er Rocket Mob á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×