Mickelson tók þátt í stofnun LIV-mótaraðarinnar en eftir að láta umdeild ummæli falla fyrr á þessu ári þá dró hann þátttöku sína til baka. Mikill hiti ríkir innan golfheimsins vegna hinnar nýju mótaraðar og skiptast kylfingar að því virðist upp í fylkingar.
Er LIV-mótaröðinni ætlað að keppa við PGA-mótaröðina um bestu kylfinga heims. Alls verða um 25 milljónir Bandaríkjadalir sem falla í skaut þeim 48 kylfingum sem taka þátt hverju sinni í nýju ofurdeildinni. Sigurvegari hvers móts mun fá fjórar milljónir Bandaríkjadala í eigin vasa eða tæplega 523 milljónir íslenskra króna.
Nýlega vakti athygli að Dustin Johnson ákvað að færa sig um set og skipta PGA-mótaröðinni út fyrir LIV-mótaröðina. Hann hafði gefið út yfirlýsingu þess efnis að hann yrði áfram hluti af PGA-mótaröðinni.
Nú hefur hinn 51 árs gamli Mickelson ákveðið að leika sama leik. Í langri yfirlýsingu á Twitter-síðu sinni segist hann endurnærður og spenntur eftir að hafa ekki spilað síðan í febrúar á þessu ári. Einnig baðst Mickelson afsökunar á ummælunum sem hann lét falla.
„Fyrst og fremst vil ég biðjast afsökunar á ummælum sem ég lét falla fyrir nokkrum mánuðum. Ég hef gert mistök á mínum ferli. Ég þurfti að setja fólkið sem ég elska í forgang og vinna í að verða betri útgáfa af sjálfum mér,“ segir meðal annars í yfirlýsingu Mickelson.
— Phil Mickelson (@PhilMickelson) June 6, 2022
Ástæðan fyrir þátttöku Mickelson er sú að kylfingurinn vill nýja áskorun. Hann vill byrja upp á nýtt og telur þetta vera spennandi skref á ferli sínum. Mickelson er þó þakklátur alls þess sem PGA-mótaröðin hefur gert fyrir hann.
Talið er að PGA-mótaröðin muni sparka þeim kylfingum sem taka þátt á LIV-mótaröðinni en ásamt Mickelson og Johnson má þar finna Sergio Garcia, Lee Westwood, Ian Poulter og Louis Oosthuizen.