Viðskipti innlent

Ásta María tekur við af Hilmari hjá Special Tours

Atli Ísleifsson skrifar
Ásta María Marinósdóttir.
Ásta María Marinósdóttir.

Hilmar Stefánsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Special Tours hefur ákveðið að láta af störfum og hefur Ásta María Marinósdóttir tekið við stöðunni.

Frá þessu segir í tilkynningu. Þar segir að Hilmar hafi leitt uppbyggingu Special Tours, Whales of Iceland og Reykjavík Röst undanfarin ár og sé félagið í dag leiðandi í hafsækinni ferðaþjónustu í Reykjavík.

Þóra Matthildur Þórðardóttir.

„Ásta María hefur starfað hjá Special Tours síðan 2013 og sem sölustjóri síðan 2015. Þóra Matthildur Þórðardóttir hefur verið ráðin sölu- og markaðsstjóri en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2018.

Special Tours er þjónustu- og markaðsfyrirtæki í ferðaþjónustu sem leggur áherslu á siglingar í afþreyingarskyni allt árið um kring. Félagið gerir út frá gömlu höfninni í Reykjavík, sem er eitt vinsælasta svæði meðal ferðamanna í borginni, og býður meðal annars upp á hvalaskoðunarferðir, norðurljósaferðir á sjó, lundaskoðunarferðir og sjóstangaveiði. Í samstæðu Special Tours er auk þess hvalasýningin Whales of Iceland. Þá rekur félagið einnig kaffihúsið Reykjavík Röst við gömlu höfnina,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×