Sport

Dagskráin í dag: Körfubolti og golf í aðalhlutverki

Hjörvar Ólafsson skrifar
Stephen Curry og Marcus Smart halda áfram baráttu sinni um að vinna NBA-deildina í kvöld. 
Stephen Curry og Marcus Smart halda áfram baráttu sinni um að vinna NBA-deildina í kvöld.  Vísir/Getty

Það eru fimm beinar útsendingar á stöðvum Stöðvar 2 Sport í dag. Það verður sýnt beint frá því þegar leikið verður áfram í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar og undanúrslitum ACB-deildarinnar. Þá er golf víðs vegar um heiminn á dagskrá. 

Stöð 2 Sport 2

Barca og Badalona mætast í fjórða leik sínum í undanúrslitum ACB-deildarinnar og hefst útsendingin klukkan 18.50.

Hitað verður svo upp fyrir fjórða leik Boston Celtics og Golden State Warriors í úrslitum NBA frá klukkan 00.30 en leikurinn hefst svo klukkan 01.00. 

Stöð 2 Golf

Sýnt verður frá Scandinavian Mixed sem er hluti af DP World Tour. Þá verður sýnt frá mótum á PGA og LPGA-mótaröðunum. 

Fleiri fréttir

Sjá meira

×