Þetta kemur fram í svari Helgu Rósu Másdóttur, deildarstjóra á bráðamóttöku spítalans, við fyrirspurn Fréttablaðsins sem fjallar um málið í dag. Þar segir að níu uppsagnir taki gildi 1. september og þrjár 1. október.
Að sögn Helgu Rósu voru 85,7 stöðugildi hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökunni mönnuð þann 1. janúar en í maí hafi talan verið komin niður í 68,5. Mönnunarlíkan Landspítalans gerir ráð fyrir 90 stöðugildum hjúkrunarfræðina á bráðamóttökunni.
Ítrekað varað við stöðunni
Greint var frá því í lok maí að fjórir hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á bráðamóttöku á einum degi og vísað til álags. Már Kristjánsson, forstöðumaður lyflækninga- og bráðaþjónustu spítalans, sagði þá að það væri sorglegt að starfsfólk sjái ekki aðra lausn en að hætta og hann kvíði því að fleiri fái nóg.
Álagið á bráðamóttöku hefur verið erfitt um nokkurt skeið og hefur Landspítali ítrekað varað við stöðunni.
„Álagið hefur stigmagnast. Við erum búin að hrópa og kalla og biðja um hjálp og það er bara algjört ráðaleysi í gangi virðist vera, eða þá að hlutirnir ganga svona hægt,“ sagði Soffía Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur í samtali við fréttastofu skömmu eftir að hún skilaði inn uppsögn sinni.
Síðasta stráið var að hennar sögn þegar hátt í hundrað sjúklingar voru á bráðamóttökunni kvöldið áður, þar af um þrjátíu innlagðir, og hún þurft að horfa upp á bráðveikt fólk bíða klukkutímum saman.
„Fólk kemur heim og er með logandi samviskubit yfir vaktinni og það hefur áhrif á okkar líf og okkar nánustu líka. Þannig þá verður maður bara að fara að hugsa sinn gang,“ sagði Soffía.
Heilbrigðisráðuneytið hefur myndað nýtt viðbragðsteymi um bráðaþjónustu í landinu til að rýna í stöðuna.