Viðskipti innlent

Salmonella í karrý kryddi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Umrætt krydd.
Umrætt krydd. Fiska.is

Matvælastofnun (MAST) hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Karríi Hot madras curry sem Lagsmaður ehf. flytur inn vegna gruns um salmonellusmit.

MAST fékk vitneskju um innköllunina í gegnum RASFF hraðviðvörunarkefi Evrópu um hættuleg matvæli og fóður.

Athuga skal að innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: TRS
  • Vöruheiti: TRS Hot Madras Curry 100gr
  • Innflytjandi: Lagsmaður ehf / Fiska.is
  • Framleiðsluland: Indland
  • Dreifing: Verslun fiska.is Nýbýlavegi 6, 200 Kópavogi.

Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, heldur farga eða fara með vöruna í verslun Fiska.is á Nýbýlavegi 6 gegn endurgreiðslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×