Sport

Dagskráin: Sambandsdeild Evrópu og stórmót í golfi

Atli Arason skrifar
Blikar verða í eldlínunni í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.
Blikar verða í eldlínunni í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Það verða átta beinar útsendingar á sport rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Íslensku liðin verða í eldlínunni í Sambandsdeild Evrópu ásamt nóg af golfi.

Stöð 2 Golf

Fjörið hest allt á Evian Championship á LPGA mótaröðinni í golfi. Fyrri útsending af mótinu hefst klukkan 09.00.

Klukkan 13.30 tekur við síðari útsending dagsins af Evian Championship.

3M Open á PGA mótaröðinni er svo í beinni útsendingu klukkan 18.00.

Stöð 2 Sport

Víkingar hefja leik í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta þegar þeir mæta velska liðinu The New Saints klukkan 19.20.

Stöð 2 Sport 2

Cazoo Classic á DP World Tour í golfi er á dagskrá klukkan 13.30.

Stöð 2 Sport 4

Opna breska meistaramót eldri kylfinga hefur göngu sína í dag og fyrri útsending dagsins hefst klukkan 11.00. Á mótinu mæta kylfingar 50 ára og eldri til leiks en goðsögnin Ernie Els er á meðal þátttakenda.

Seinni útsending dagsins af sama móti fer af stað klukkan 15.30.

Klukkan 19.05 mun Breiðablik taka á móti Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi í Sambandsdeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×