Fótbolti

Frá­bær bak­falls­spyrna í Garði - mynd­skeið

Hjörvar Ólafsson skrifar
Víðismenn skoruðu þrjú gegn KFG í gær. 
Víðismenn skoruðu þrjú gegn KFG í gær.  Mynd/Víðir Garði

Jóhann Þór Arnarsson skoraði glæsilegt mark fyrir Víði Garði þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við KFG í leik liðanna í 3. deild karla í fótbolta í Garði í gær. Sjón er sögu ríkari en myndskeið af markinu má sjá í þessari frétt. 

Jóhann Þór skoraði tvö marka Víðis í leiknum en annað markið skoraði hann með glæsilegri bakfallsspyrnu en hann er í loftinu á myndinni hér að neðan.

Víðir er í harðri baráttu um að komast upp úr deildinni en leikurinn í gær var toppslagur. KFG, Víðir og Dalvík/Reynir eru jöfn á toppnum með 25 stig hvert lið. Sindri er svo í fjórða sæti deildarinnar með 24 stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×