England bar sigurorð af Svíþjóð, 4-0, þegar liðin áttust við í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta á Bramall Lane í kvöld.
Enska liðið komst yfir eftir rúmlega hálftíma leik en þar var að verki Beth Mead. Lucy Bronze, Alessia Russo og Fran Kirby skoruðu svo mörk Englands í seinni hálfleik.
Mead lagði upp tvö marka heimakvenna og Bronze eitt.
Það kemur í ljós annað kvöld hvort það verður Frakkland eða Þýskaland sem mætir enska liðinu í úrslitaleik mótsins sem fram fer á Wembley á sunnudaginn kemur.