Innlent

Sér­sveitin hand­tók fólk í strætis­vagni

Árni Sæberg skrifar
Sérsveit ríkislögreglustjóra var send á eftir fólkinu.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var send á eftir fólkinu. Vísir/Vilhelm

Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för strætisvagns við Háskóla Íslands í dag. Fólk sem grunað er um líkamsárás var handtekið í vagninum.

Morgunblaðið hefur eftir Jóhanni Karli Þórissyni, yfirlögregluþjóni lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, að par sem tengdist líkamsárás sem framin var á Hlemmi í dag hafi flúið upp í strætisvagn.

Málið sé nú í hefðbundnum farvegi hjá lögreglunni.

Ekki hefur náðst í Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×