Innlent

„Nei mér finnst það ekki boðlegt“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs og Dagur B. Eggertssonar er borgarstjóri.
Einar Þorsteinsson er formaður borgarráðs og Dagur B. Eggertssonar er borgarstjóri. Vísir/Vilhelm

Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Oddviti Framsóknar í Reykjavík segir stöðuna ekki boðlega.

„Þú þarft að finna út úr þessu“

Kristín Tómasdóttir skipulagði mótmælin. Þegar borgarfulltrúar mættu á svæðið þjarmaði hún að þeim og krafðist lausna.

„Við höfum ekki tíma. Okkar þekking og störf nýtast ekki atvinnulífinu á meðan þið eruð að skoða einhverjar áætlanir. Við þurfum að sjá lausnir. Þið þurfið að grípa til einhverra aðgerða svo að við fáum leikskólapláss 1. september. Október, nóvember eða janúar dugar ekki. Við getum ekki verið atvinnulaus þangað til, það er ekki hægt. Því miður. Þú verður að finna út úr þessu, finna lausnir,“ sagði Kristín við Dag B. Eggertsson, borgarstjóra í morgun.

Hvernig slær það þig að sjá alla þessa foreldra í dag? 

„Mér finnst bara gaman að sjá fólk í ráðhúsinu. Þetta er auðvitað mikið forgangsmál hjá borginni að brúa bilið. Við erum að setja bæði mikla fjármuni og mikinn kraft í þessi verkefni,“ sagði Dagur B. Eggertsson.

Ég hugsa að þessum foreldrum finnist ekki jafn gaman að vera hér og þér finnst að sjá þau í ráðhúsinu. Nú eru nokkrir mánuðir síðan leikskólaplássum var lofað í kosningunum og hér erum við í dag?

„Brúum bilið áætlunin, hún var sett af stað fyrir fjórum árum og var talið að hún tæki allt að sex ár í framkvæmd. Hefur gengið vel þannig við gáfum það út síðasta vetur að við yrðum líklega ári á undan áætlun og bundum vonir við það að núna í september yrðu börn fædd í september í fyrra fyrstu tólf mánaða börnin inn. Við fáum upplýsingar í borgarráði í næsta mánuði um hvernig þetta gengur, en skóla- og frístundasvið flaggaði á það í byrjun sumars að vegna fjölgunar barna vegna flutninga til Reykjavíkur þá væri óvíst að þetta næðist,“ sagði Dagur.

Oddviti Framsóknarflokksins í borginni segir þetta miður.

„Af því að þessu var lofað fyrir kosningar af þeim sem réðu hér áður. Áætlanir voru metnaðarfullar um að fjölga plássum og síðan hefur bara eitthvað gerst,“ sagði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í Reykjavík.

Hvað getið þið gert? Ertu inni í þessum málum?

„Við erum tiltölulega nýkomin að málum í Ráðhúsinu og þetta hefur ekki verið á okkar borði í borgarráði síðan við komum til starfa, en við munum leita allra leiða til að leysa málin.“

Finnst þér þetta boðlegt?

„Nei mér finnst það ekki boðlegt.“


Tengdar fréttir

Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja

Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×