Eldgosið í Meradölum trekkir að, bæði Íslendinga sem og erlenda ferðamenn sem heimsækja landið. Um fimm þúsund heimsóttu svæðið í gær og reikna má að töluverður fjöldi leggi leið sína að gosinu í dag og um helgina.
Bogi Adolfsson, formaður Þorbjarnar, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun, þar sem hann ræddi um hvað þyrfti að hafa í huga fyrir ferðalag að gosinu.
Einn fótbrotnaði í gær
Benti hann að þrátt fyrir að verið væri að lagfæra aðalgönguleiðina að gosinu, svokallaða A-leið, ætti eftir að klára það til enda. Sú vinna auðveldar aðgengið að einhverju leyti, en áfram þarf að reikna með fimm til sex tímum í ferðalagið.

„Leiðin er í raun og veru ekkkert styttri en það er þægilegra að labba. Við erum búin að þétta á milli stika. Á morgun eða hinn fara upp á hundrað metra fresti svona ljósamöstur eða blikkandi ljós, upp á þokuna að gera,“ sagði Bogi. Komið hefur fyrir að ferðamenn villist af gönguleiðinni að næturlagi, eins og gerðist í nótt.
Ánægjuleg upplifun með réttum undirbúningi
Björgunarsveitir standa vaktina á svæðinu. Segir Bogi að ekki hafi verið mikið um að fólk hafi slasað sig, þó alltaf einn og einn. Til að mynda hafi einn fótbrotnað í gær. Þá sinna björgunarsveitarmenn ýmsum verkum á svæðinu.
„Svo er einn og einn ferðamaður sem við erum að skutla niður, bæði í „guide-uðum“ hópum og á einkavegum, búnir að labba af sér skóna, það er bara ekkert eftir,“ segir Bogi.
Hvetur hann alla þá sem ætla að skoða gosið að undirbúa ferðina vandlega.
„Maður skilur alveg aðdráttaraflið og allt en fólk má ekki alveg gleyma sér í því, hvað á maður að segja, að nánast drepa sig við það að sjá eldgos.

Það þarf að hugsa þetta aðeins og um leið og þú gerir það þá líður þér miklu betur sjálfur á leiðinni. Ef þú spáir í fatnaði, hefur með þér gott að borða, ert í góðum skóm, þá er þetta bara skemmtileg upplifun,“ segir Bogi.
Þá segir hann mikilvægt að fylgja fyrirmælum og leiðbeiningum viðbragsaðila á vettvangi. Björgunarsveitarmenn séu til að mynda með gasmæla sem betra sé að hlusta á.
„Það er bara þegar þetta fer að pípa þá er betra að fara í burtu.“
Með allt þetta á hreinu geti gosferðin verið ánægjuleg upplifun.

„Ef þú gerir þetta rétt þá er þetta eitthvað til að njóta. Það er ekkert gaman að vera aftan í björgunarsveitarbílnum hjá okkur í börum að hossast til baka. Það tekur einn klukkutíma eða meira.“
Horfa má á beina útsendingu frá gosinu hér fyrir neðan.