Tónlist

Innsýn í hugarheim skemmtikrafta

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Unnsteinn Manúel og Hermigervill sameinuðu krafta sína í laginu Eitur.
Unnsteinn Manúel og Hermigervill sameinuðu krafta sína í laginu Eitur. Helga Laufey Ásgeirsdóttir

Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manúel var að senda frá sér lagið Eitur í samstarfi við Hermigervil. Blaðamaður heyrði í Unnsteini, sem er að flytja heim eftir tvö ár í Berlín og segist einblína á danstónlist um þessar mundir.

Hver er innblásturinn að laginu?

Ég er að vinna að fyrstu sólóplötunni minni með Hermigervli. Hann kom til mín til Berlínar síðasta sumar og við byrjuðum í raun og veru upp á nýtt á plötunni þegar við lentum á þessu lagi. Hermigervill tók gítargutl frá mér og forritaði úr því þennan takt sem varð svo upphafið að laginu og í raun innblástur að plötunni í heild sinni. 

Ég er að einblína á danstónlist, það er tónlistin sem ég vil heyra og ég finn það að hlustendur eru á sama máli og vilja komast út að dansa eftir faraldurinn. 

Textinn er svo eiginlega innsýn í hugarheim okkar skemmtikrafta sem stöndum á sviðinu á klúbbnum.

Hefur það verið lengi í bígerð?

Það eru vísar í laginu sem eru frá því fyrir mörgum árum síðan, en við kláruðum svo lagið að mestu leyti þegar við frumfluttum það í Kryddsíldinni síðustu áramót. Ég vann aðeins í textanum síðan og ég fékk gamla gengið mitt úr stúdíóinu til þess að gefa laginu ákveðin glans. Young Karin og Flóni syngja bakraddir og Young Nazareth hljóðblandaði lagið.

Klippa: Unnsteinn Manuel - Eitur

Hvernig hefur sumarið verið?

Þetta hefur verið mjög gott sumar, Hermigervill kom til mín til Berlínar og við unnum í plötunni. Svo fór restin af sumrinu í að undirbúa flutninga heim til Íslands eftir tvö ár í Berlín.

Hilmar Mathiesen/ Viktor Weishappel

Hvað er á döfinni?

Ég ætla gefa út tónlist með reglulegu millibili og reyna bara að spila sem mest. Mig þyrstir í að koma fram aftur eftir þessa skrýtnu tíma og hlakka til að deila þessari nýju tónlist með sem flestum.

Hermigervill og Unnsteinn að störfum.Helga Laufey Ásgeirsdóttir


Tengdar fréttir

Unnsteinn Manuel og Hermigervill frumfluttu nýtt lag

Tónlistarmennirnir Unnsteinn Manuel og Hermigervill komu með stemninguna með sér í Kryddsíldina, áramótaþátt Stöðvar 2. Þar frumfluttu þeir nýtt lag, sem ber heitið Eitur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.