Fótbolti

Dýrasti leik­maður í sögu Arsenal lánaður til Nice

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Nicolas Pépé mun ekki leika með Arsenal í vetur.
Nicolas Pépé mun ekki leika með Arsenal í vetur. Stuart MacFarlane/Getty Images

Aðeins eru þrjú ár síðan Nicolas Pépé var gerður að dýrasta leikmanni í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal. Hann hefur nú yfirgefið félagið á lánssamningi og mun nú spóka sig um á frönsku Ríveríunni og spila með Nice í frönsku úrvalsdeildinni.

Segja má að Pépé hafi aldrei náð þeim hæðum sem vonast var til í Lundúnum en hann kostaði Skytturnar 72 milljónir punda sumarið 2019. Þá var hann með rúmar sjö milljónir punda í árslaun hjá félaginu svo alls hefur Pépé kostað Arsenal tæpar 94 milljónir punda til þessa. Pépé, sem getur leikið á báðum köntum, spilaði alls 80 leiki í ensku úrvalsdeildinni. Skoraði hann í þeim 16 mörk og lagði upp 9 á samherja sína.

Hann gerir samning við Nice út þessa leiktíð en franska félagið hefur ekki forkaupsrétt og þarf ekki að kaupa leikmanninn fari svo að hann spili ákveðið marga leiki eða skori ákveðið magn af mörkum.

Nice hefur verið duglegt á leikmannamarkaðnum í sumar. Liðið fékk Kasper Schmeichel frá Leicester City, Aaron Ramsey á frjálsri sölu, Marcin Bulka frá París Saint-Germain, Rares Ilie frá FC Rapid, Alexis Beka Beka frá Lokomotiv Moskvu og Mattia Viti frá Empoli. 

Nice er í 16. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar með tvö stig eftir þrjá umferðir. Arsenal er á sama tíma á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×