Öflug endurkoma Napoli gegn Lazio

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Georgíumaðurinn var magnaður í kvöld.
Georgíumaðurinn var magnaður í kvöld. vísir/Getty

Lazio fékk Napoli í heimsókn í síðasta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta og úr varð hörkuleikur.

Heimamenn fengu draumabyrjun því Mattia Zaccagni átti gott skot utan vítateigs sem hafnaði í markinu strax á fjórðu mínútu. 

Gestirnir unnu sig vel inn í leikinn og á 38.mínútu jafnaði Suður-Kóreumaðurinn Min-jae Kim metin. 

Síðari hálfleikurinn byrjaði kröftuglega og herjuðu sóknarmenn Napoli á mark heimamanna. Það skilaði þó ekki marki fyrr en eftir klukkutíma leik en þá skoraði Georgíumaðurinn Khvicha Kvaratskhelia laglegt mark.

Reyndist það sigurmark leiksins og tyllti Napoli sér þar með á toppinn með ellefu stig eftir fimm leiki.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira