Innlent

Fjórar byrlanir tilkynntar til lögreglu

Samúel Karl Ólason skrifar
Varðstjóri telur að verkefnum fari fjölgandi um helgar.
Varðstjóri telur að verkefnum fari fjölgandi um helgar. Vísir/Kolbeinn Tumi

Lögregluþjónar höfðu aftur nóg fyrir stefni vegna margra útkalla og verkefna í nótt. Fjórar tilkynningar um mögulegar byrlanir bárust lögreglu. Málin eru í rannsókn og var blóðsýni tekið úr öllum þolendum.

Þá fundu lögregluþjónar þrjá hnífa bíl hjá manni eftir leit í bílnum vegna gruns um fíkniefnalagabrot. Sá á von á kæru fyrir brot á vopnalögum. Minnst tíu ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Þá var talsvert af minniháttar málum á borði lögreglu, sem flest tengdust ölvun.

Í dagbók lögreglunnar segir Stefán Árni Jónsson, varðstjóri, að mat hans sé að verkefnum lögreglunnar fari fjölgandi um helgar.

Einnig var mikið að gera hjá lögregluþjónum í fyrrakvöld vegna ölvunar.

Sjá einnig: Erill vegna mikillar ölvunar

Lögregluþjónar í miðbænum höfðu afskipti af ofurölvi manni í á fjórða tímanum í nótt. Honum hafði nýverið verið vísað af skemmtistað vegna óláta og neitaði að segja til nafns. Hann var látinn gista í fangaklefa í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×