Sport

Dagskráin í dag - Stórleikur á Kópavogsvelli

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Valsarar heimsækja Kópavog.
Valsarar heimsækja Kópavog. Vísir/Diego

Það verður nóg um að vera á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag en hæst ber stórleikur í Bestu deildinni í fótbolta.

Topplið Breiðabliks mætir Val og getur Kópavogsliðið komið sér í afar þægilega stöðu á toppi deildarinnar á meðan Valur situr í fjórða sæti og þarf á öllum stigum að halda til að eygja einhverja von á að ná einu af þremur efstu sætum deildarinnar.

Leikur Breiðabliks og Vals hefst klukkan 19:15 og í kjölfarið verður öll 20.umferðin gerð upp í Stúkunni en óhætt er að segja að dramatíkin hafi verið allsráðandi í umferðinni.

Auk íslenska boltans verður ítalski fótboltinn, rafíþróttir og handbolti meðal dagskrárefnis en allar útsendingar dagsins má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×