Viðskipti innlent

Margrét hættir hjá Öl­gerðinni

Atli Ísleifsson skrifar
Margrét Arnardóttir hóf störf hjá Ölgerðinni árið 2016.
Margrét Arnardóttir hóf störf hjá Ölgerðinni árið 2016. Vísir/Vilhelm

Margrét Arnardóttir hefur óskað að láta af störfum sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar og samið um starfslok sín.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Ölgerðinni til Kauphallar. Segir að Margrét hafi stýrt sviðinu frá árinu 2016 og mörgum stærstu verkefnum fyrirtækisins síðustu ár, nú síðast umfangsmiklum fjárfestingum í húsnæði og vélbúnaði sem stórauki framleiðslugetu fyrirtækisins.

Áður en Margrét hóf störf hjá Ölgerðinni árið 2016 starfaði hún hjá Landsvirkjun um nokkurra ára skeið.

Haft er eftir Margréti að tími mikilla umbreytinga sé að baki og Ölgerðin sé nú allt önnur og öflugri en áður.

„Við höfum breytt verklagi og framleiðsluferlum, uppfært og innleitt ný kerfi, aukið öryggi starfsfólks í framleiðslu, sett upp nýjar vélar og byggt frá grunni einhvern fjölhæfasta framleiðslusal í heimi. Við höfum stóraukið framleiðsluna, gert margvíslegar tilraunir með nýjar vörur, aukið gæðin og unnið til fjölmargra verðlauna. Við höfum bætt vinnuaðstöðu og aðbúnað starfsfólks, sem myndar sterka liðsheild á þessum frábæra vinnustað. Ég er þakklát mínu góða samstarfsfólki fyrir undanfarin ár, en fyrir mig er tímabært að snúa mér að nýju verkefni – nú þegar Ölgerðin er reiðubúin að mæta framtíðinni,“ segir Margrét.

Þá segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, að Margrét hafi lyft grettistaki í þeim fjölmörgu verkefnum sem hún hafi leitt og stýrt innan Ölgerðarinnar síðustu ár. „[V]ið erum þakklát fyrir þau góðu verk sem hún hefur skilað innan fyrirtækisins. Kraftur, áhugi og elja hafa einkennt störf hennar og hún skilar góðu búi til eftirmanns síns. Henni fylgja okkar bestu óskir í hverju sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni,“ segir Andri Þór.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×