Fréttin er unnin upp úr fréttatilkynningu frá BL, umboðsaðila Nissan á Íslandi.

Nissan X-Trail kemur nú í fyrsta sinn með e-Power tækni Nissan sem veitir ökumanni og farþegum sambærilega upplifun og einkennir hljóðlátan og snarpan akstur hreinna rafbíla. Munurinn er þó sá að aldrei þarf að stinga X-Trail í samband við hleðslustöð enda sér hljóðlát og sparneytin bensínvél X-Trail um að hlaða orku beint á rafhlöðu bílsins þaðan sem 213 hestafla (94kW) rafmótorinn fær alla sína orku.
Akstursupplifun rafbíls
Nissan þróaði nýjustu útgáfu sína á e-Power tækninni sérstaklega með jepplinga í huga enda býður hún upp á sparneytni. Það sem aðgreinir e-Power frá annari tvinntækni er að rafmótorinn er eini aflgjafinn út til hjóla sem gerir viðbragð bílsins jafn tafarlaust á rafbíl.
Því er tæknin til að mynda kjörin fyrir þá sem eru annað hvort ekki í aðstöðu til að hlaða bílinn heima eða vilja vera lausir við að koma við á hleðslustöðvum á lengri ferðalögum um landið. Hin nýja e-Power tækni Nissan X-Trail stýrir sérstaklega afköstum í bæði hröðun og hemlun fyrir hvert hjól sem skilar mýkt og stöðugleika í akstri við fjölbreyttar aðstæður og misjafna vegi, ekki síst í beygjum í mikilli hálku.

5 og 7 manna
Nýr Nissan X-Trail e-Power er fjórhjóladrifinn jepplingur sem boðinn verður í bæði 5 og 7 sæta útgáfu og er X-Trail eini 7 sæta rafknúni jepplingurinn í sínum stærðarflokki á markaðnum. Bíllinn er einungis 7 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km/klst enda er togsvörunin margföld samanborið við sambærilegan bíl með hefðbundið mekanískt fjórhjóladrif. Þá er bíllinn byggður á nýjum CMF-C undirvagni með uppfærðri Macpherson fjöðrun og yfirbyggingin að mestu leyti smíðuð úr áli til að draga úr þyngd og auka sparneytni.