Fótbolti

Neymar tryggði PSG nauman sigur

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Neymar fagnar í dag.
Neymar fagnar í dag. vísir/Getty

Frakklandsmeistarar PSG eru taplausir eftir fyrstu sjö umferðirnar í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Í dag fengu þeir Brest í heimsókn til höfuðborgarinnar og var búist við þægilegum sigri heimamanna.

Brasilíumaðurinn Neymar kom PSG í forystu eftir hálftíma leik þegar hann skoraði eftir sendingu frá Lionel Messi.

Þrátt fyrir mikinn sóknarþunga tókst PSG ekki að auka við forystuna og voru raunar stálheppnir að sleppa með sigur úr leiknum því Islam Slimani, sóknarmaður Brest, brenndi af vítaspyrnu á 70.mínútu.

Lokatölur því 1-0 fyrir PSG sem trónir á topp deildarinnar með nítján stig en Marseille getur jafnað þá að stigum í kvöld þegar liðið fær Lille í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×