Í fréttatilkynningu frá HHÍ segir að númer hins heppna miðaeiganda hafi komið upp þegar dregið var í Milljónaveltunni, sem var fimmföld. Því fær hann fimmtíu milljónir lagðar inn á bankareikning, skattfrjálst.
Þá voru fleiri sem duttu í lukkupottinn í kvöld. Þar má helstan nefna miðaeigandann sem fékk 500 þúsund króna vinning en þar sem hann er með fimmfaldan miða, svokallaðan trompmiða, fær hann 2,5 milljónir króna í sinn hlut.