
Vladimir Putin forseti Rússlands snéri öllu á haus sem hægt var í sýndarmennskuathöfn í Kreml í dag þar sem þingmenn fylgdust með honum og leppstjórum fjögurra héraða í Úkraínu skrifa undir formlega innlimun þeirra í Rússland. Þetta væri stórfengleg frelsun á Rússum.
„Ég vil að stjórnvöld í Kænugarði og húsbændur þeirra á Vesturöndum heyri í mér svo það verði öllum minnisstætt. Íbúar Luhansk og Donetsk, Kherson og Zaporizhzhia eru orðnir samborgarar okkar. Um alla framtíð.
Vesturlönd með Bandaríkin í broddi fylkingar stæðu hins vegar fyrir kúgun, þrælahaldi og ofbeldi um allan heim. Vildu troða úrkynjuðum gildum sínum upp á Rússa.
„Viljum við virkilega hafa hér í landi okkar, í Rússlandi, foreldra númer eitt, númer tvö og númer þrjú í stað mömmu og pabba? Þetta er algjörlega galið,“ sagði Putin sem barið hefur niður réttindabaráttu hinsegin fólks eins og annarra sem ekki eru honum sammála.
Vesturlönd beittu áróðurstækni þýskra nasista og skemmdarverkum gegn Rússum.
„Engilsaxar láta ekki refsiaðgerðir duga. Þeir stunda núskemmdarverk. Ótrúlegt en satt. Með því að standa fyrir sprengingum á alþjóðlegu gasleiðslunum Nord Stream á botni Eystrasalts hófst eyðilegging þeirra áorkuinnviðum Evrópu,“ sagði forsetinn.

Rússar ráða ekki einu sinni yfir öllum þeim héruðum sem þeir hafa nú gert að sínum. Þeir ráða Luhansk, Kherson að mestu en aðeins hluta af Donetsk og Zaporizhzhia.

Úkraína er um sex sinnum stærri en Ísland. Í dag ráða Rússar yfir um 15 prósentum af Úkraínu, sem svarar til um 85 prósenta af Íslandi. Úkraínumenn hafa hrakið þá til undanhalds víða þótt Rússar skjóti enn eldflaugum að íbúðarbyggð eins og í Zaporizhzhia í dag þar sem 23 óbreyttir borgarar féllu.

Volodymyr Zelenskyy forseti úkraínu sagði í dag að Úkraína hefði uppfyllt öll skilyrði til aðildar að NATO.
„Við treystum hvert öðru, hjálpum og verndum hvert annað. Sá er tilgangur Bandalagsins. Úkraína sækir um aðild svo tengslin verði lögum samkvæmt. Málsmeðferðin er í samræmi við áherslur okkar um vernd alls samfélags okkar og kallar á flýtimeðferð,“ sagði Zelenskyy.
Leiðtogar Vesturlanda hafa fordæmt hinar svo kölluðu kosningar um innlimun og þá athöfn sem fram fór í Kreml í dag.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra segir fordæminguna ná út fyrir raðir bandalagsríkja í Evrópu. Þannig hafi forseti Serbíu lýst því yfir að hann viðurkenndi ekki kosningarnar.
„Þessar kosningar svo kölluðu eru gervikosningar og fullkomin þvæla. Ekkert mark á þeim takandi. Þetta sýnir að staðan er að verða alvarlegri. Orðræðan er herskári inni í Rússlandi. Svo horfum við upp á fjöldann allan af ungum mönnum sem eru að flýja þaðan því þeir vilja ekki gegna herskyldu,“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir.