Hannesarholti var lokað fyrir rúmi ári eftir að tveggja ára viðræður við stjórnvöld um fjármögnun runnu út í sandinn. Í Hannesarholti mun nú aftur hefjast skipulögð menningarstarfsemi og veitingasala en það er matreiðslumaðurinn Friðrik fimmti sem heldur utan um matseld.
Eigendur Hannesarholts segja daginn yndislegan gleðidag og eru þakklátir fyrir að óvissu um framtíð rekstursins hafi verið eytt.
Myndir frá opnunardeginum í dag má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.