Bíó og sjónvarp

Nýr Svartur pardus og neðan­sjávar þjóðir

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hér má sjá hluta leikhópsins á D23, Disney ráðstefnunni.
Hér má sjá hluta leikhópsins á D23, Disney ráðstefnunni. Getty/Jesse Grant

Ný stikla vegna nýrrar Black Panther kvikmyndar, „Black Panther 2: Wakanda Forever“ var birt í gær. Stiklan gefur meiri innsýn inn í komandi kvikmynd sem verður frumsýnd þann 11. nóvember næstkomandi.

Söguþráður myndarinnar heldur áfram án Chadwick Boseman sem lék aðalhlutverkið, konunginn T‘Challa í fyrstu myndinni en hann lést úr ristilkrabbameini árið 2020 aðeins 43 ára gamall.

Í stiklunni má sjá gömul andlit og ný og mótar og kynnast áhorfendurnir neðansjávar þjóðinni Talokan sem Namor stjórnar. Namor er leikinn af Tenoch Huerta.

Þar að auki sjá áhorfendur Wakanda syrgja andlát T‘Challa og takast á við afleiðingar þess.

Í lok stiklunnar má sjá nýjan Svartan pardus sem virðist vera kvenkyns. Plakat kvikmyndarinnar gefur til kynna að Shuri, sem leikin er af Letitia Wright og er systir T‘Challa sinni stærra hlutverki en áður. Spurningin er hvort hún sé sú sem leynist innan Svarta pardus búningsins.

Meðal leikenda í myndinni eru Lupita Nyong‘o , Letitia Wright, Angela Bassett og Martin Freeman.

Nýju stikluna má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.