Bíó og sjónvarp

Lindsay Lohan snýr aftur í nóvember

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Lohan hefur lítið sést á skjánum á síðustu árum en nú virðist Lohan tímabil vera að hefjast.
Lohan hefur lítið sést á skjánum á síðustu árum en nú virðist Lohan tímabil vera að hefjast. Getty/Santiago Felipe

Á deginum sem Aaron Samuels spurði Cady Heron hvaða dagur væri, Mean Girls deginum þann 3. október birti Lindsay Lohan plakatið fyrir komandi Netflix mynd sína „Falling for Christmas.“

Tökur myndarinnar stóðu yfir fyrir rétt tæpu ári en í aðalhlutverki ásamt Lohan er Glee leikarinn Chord Overstreet. Kvikmyndin er sú fyrsta af þessari stærðargráðu fyrir Lohan í nærri áratug. Vulture greinir frá þessu.

Söguþráður myndarinnar virðist fara eftir týpískri formúlu rómantískra jólakvikmynda. Lohan leikur nýtrúlofaðan hótelerfingja sem lendir í skíðaslysi sem veldur minnisleysi.

Kvikmyndin er hluti af þriggja kvikmynda samningi sem Lohan gerði við Netflix en hún er nú sögð stödd á Írlandi við tökur á sinni næstu á vegum streymisveitunnar, „Irish wish.“

Lohan er einna þekktust fyrir leik sinn í fjölskyldumyndinni „The Parent Trap“ frá árinu 1998, „Mean Girls“ frá árinu 2004 og „Freaky Friday“ frá 2003. Lohan hefur lítið verið í sviðsljósinu á síðustu árum en virðist nú vilja stíga aftur inn í bransann og glæða leiklistarferil sinn lífi á ný.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá Lohan fara yfir helstu tískuaugnablik ferils síns og fara yfir skemmtilegar minningar frá ferlinum. 


Tengdar fréttir

Lindsay Lohan snýr aftur í rómantískri jólamynd

Leikkonan og barnastjarnan Lindsay Lohan snýr aftur á skjáinn eftir langa fjarveru. Hún fer með aðalhlutverk í rómantískri gamanmynd sem væntanleg er á Netflix um jólin á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.