Innlent

Skóla­stjórn­endur MH segja fag­aðila hafa verið kallaða til

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Steinn Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð.
Steinn Jóhannsson rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Vísir/Egill Aðalsteinsson

Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans.

Í tilkynningunni sem undirrituð er af Steini Jóhannssyni skólameistara, kemur fram að mál sem þessi séu litin alvarlegum augum. Aðgerðaráætlun hafi verið virkjuð og óháður fagaðili hafi verið fenginn til þess að ráðleggja varðandi viðbrögð og aðgerðir.

Tilkynninguna í heild sinni má lesa hér að neðan.

Mótmæli nemenda vegna málsins fóru fram víðs vegar um skólann, þeir vörpuðu spurningum sínum fram á speglum, nafngreindu meinta gerendur og hengdu blöð með skilaboðum til skólastjórnenda á veggi.

Tilkynning frá skólastjórnendum MH

Í ljósi umfjöllunar um kynferðisofbeldi vill Menntaskólinn við Hamrahlíð koma eftirfarandi á framfæri:

Skólastjórnendur líta á mál sem varða kynferðisofbeldi mjög alvarlegum augum. Þegar slík mál hafa komið upp er aðgerðaráætlun skólans virkjuð og unnið samkvæmt henni. Skólastjórnendur fengu strax í gær óháðan fagaðila til ráðgjafar um viðbrögð og aðgerðir vegna ábendinga nemenda. Skólastjórnendur funduðu ásamt ráðgjafa með nemendum vegna málsins í dag. Unnið verður áfram í málinu eins og aðgerðaáætlun gerir ráð fyrir.

Þá hafa stjórnendur skólans verið í samtali við stjórn nemendafélagsins og formann skólanefndar.


Tengdar fréttir

Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum

Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×