Lífið

Britney fyrirgefur mömmu sinni ekki

Elísabet Hanna skrifar
Britney Spears telur ólíklegt að hún geti fyrirgefið fjölskyldunni sinni.
Britney Spears telur ólíklegt að hún geti fyrirgefið fjölskyldunni sinni. Getty/Steve Granitz

Söngkonan Britney Spears er ekki sátt við afsökunarbeiðnina sem móðir hennar skildi eftir undir mynd á Instagram miðli Britney. „Mamma taktu afsökunarbeiðnina þína og rí**u þér,“ sagði hún meðal annars. 

Í síðustu viku opnaði Britney sig á Instagram um það hvernig enginn í fjölskyldunni hennar væri að taka ábyrgð og að þeim þætti ekkert rangt við það sem hafi átt sér stað. „Þau gætu að minnsta kosti tekið ábyrgð á gjörðum sínum og viðurkennt þá staðreynd að þau særðu mig,“ sagði Britney meðal annars um að hafa verið svipt sjálfræði í þrettán ár. 

Söngkonan sagðist einnig vera búin að skrifa þrjár útgáfur af bók um lífið sitt og að hún sé búin að leita sér mikillar sálfræðiaðstoðar. Hún telur það þó ólíklegt að hún muni nokkurn tímann komast yfir það sem átti sér stað. 

Spears fjölskyldan árið 2003.Getty/ KMazur

Mamma hennar skrifaði athugasemd

„Ég er svooo leið yfir sársaukanum sem þú finnur! Ég hef verið miður mín í mörg ár! Ég elska þig svo mikið og sakna þín. Viltu vinsamlegast unblocka mig svo ég geti talað við þig í persónu! Britney, innst inni veistu hvað ég elska þig og sakna þín mikið! Ég biðst afsökunar á öllu sem hefur sært þig!“ Skrifaði móðir hennar Lynne Spears undir færsluna. 

Þess má geta að móðir hennar krafðist þess að Britney myndi borga lögfræðikostnaðinn sinn, sem hún þurfti að greiða fyrir í tengslum við sjálfræðisbaráttu dóttur sinnar. Britney neitaði því og fór móðir hennar í mál við hana.

Britney svarar mömmu sinni

Nú hefur Britney hafa svarað móður sinni. „Í þrettán ár þurfti ég að hitta lækna vikulega til þess að rifja upp fortíðina mín sem gerði allt verra,“ sagði Britney. Hún segir að á sama tíma hafi allir innan fjölskyldunnar sinnar verið í vímu eða drukknir. 

Hún segist hafa verið dýrlingur sem þorði ekki að hreyfa sig af ótta við það að pabbi sinn myndi setja sig inn á stofnun. Hún segir ekki eina manneskju hafa staðið með sér. „Mamma taktu afsökunarbeiðnina þína og rí**u þér! Og til allra læknanna sem voru að rugla í hausnum á mér, ég bið þess að þið brennið öll í helvíti!“


Tengdar fréttir

Britney loks orðin frjáls

Söngkonan Britney Spears stjórnar lífi sínu loks sjálf aftur að fullu. Dómari í Los Angeles felldi í kvöld niður forræði annarra yfir fjármálum hennar og öðrum ákvörðunum í lífi Spears. Úrskurðurinn hefur þegar tekið gildi.

Britney kennir mömmu sinni um sjálfræðismissinn

Ofurstjarnan Britney Spears segist kenna móður sinni um að faðir hennara hafi farið með forræði yfir henni síðustu þrettán ár. Söngkonan hefur lítið sem ekkert haft um fjármál sín eða einkamál að segja þennan rúma áratug. 

Britney biður þess að foreldrar sínir brenni í helvíti

„Ég segi það hátt og stolt, ég bið þess að þið brennið bæði í helvíti,“ sagði söngkonan Britney Spears í færslu um foreldra sína á Instagram í gær. Britney er dugleg að deila hugsunum sínum með fylgjendum á miðlinum og segir það hjálpa sér andlega.

Britney Spears lét allt flakka í nýju myndbandi

Söngkonan Britney Spears birti rúmlega tuttugu mínútna myndband á Youtube í gær þar sem hún tjáði sig meðal annars um sjálfræðisbaráttu sína. Myndbandinu hefur nú verið lokað og Britney hefur eytt Twitter færslu þar sem hún auglýsti það. Einnig virðist Britney hafa lokað Instagram reikning sínum aftur, þó ekki sé vitað hve lengi það verður.

Britney Spears sár út í barnsföður sinn Kevin Federline

Fyrrum eiginmaður og barnsfaðir Britney Spears, Kevin Federline, segir föður Britney hafa bjargað lífi hennar þegar hann tók af henni sjálfræðið og segir syni þeirra ekki vilja hitta mömmu sína. Hann kennir meðal annars þeim myndum sem Britney kýs að deila á Instagram um þá ákvörðun.

Britney Spears á í miklum deilum við systur sína á samfélagsmiðlum

Britney Spears hefur staðið opinberlega í deilum við systur sína Jamie-Lynn í gegnum miðla og ásakar hana um að nota sig til þess að selja nýju bókina sína. Britney hefur áður haldið því opinberlega fram að systir hennar hafi ekki staðið við bakið á sér í gegnum sjálfræðisdeiluna sem Britney þurfti að herja við föður sinn í heil 13 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.