Leik lokið: AC Milan - Juventus 2-0 | AC Milan hafði betur í stórleiknum

Hjörvar Ólafsson skrifar
Brahim Diaz fagnar markinu sem hann skoraði með liðsfélaga sínum, Rafael Leao. 
Brahim Diaz fagnar markinu sem hann skoraði með liðsfélaga sínum, Rafael Leao.  Vísir/Getty

AC Milan fór með 2-1 sigur af hólmi þegar liðið fékk Juventus í heimsókn á San Siro í stórleik helgarinnar í ítölsku A-deildinni í fótbolta karla.

Miðvörðurinn Fikayo Tomori kom AC Milan á bragðið með marki í uppbótartíma fyrri hálfleiks og Brahim Diaz gulltryggði sigur heimamanna með því að skora í upphafi seinni hálfleiks. 

Þessi sigur fleytti AC Milan upp að hlið toppliða deildarinnar, Napoli og Atalanta, sem eiga þó bæði leik góða á Mílanóliðið. 

Juventus er hins vegar í áttunda sæti deildarinnar með 13 stig, sjö stigum á eftir liðunum sem tróna á toppnum. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira