Fótbolti

Alfons spilaði allan leikinn í mikilvægum sigri

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Alfons Sampsted.
Alfons Sampsted. vísir/getty

Spennandi lokaumferðir framundan í norska boltanum.

Alfons Sampsted lék allan leikinn í hægri bakverðinum hjá Bodo/Glimt þegar liðið vann 4-1 sigur á Sandefjord.

Patrik Sigurður Gunnarsson stóð á milli stanganna hjá Viking Stavanger þegar liðið steinlág gegn Lilleström, 0-3.

Bodo/Glimt í harðri baráttu við Lilleström og Rosenborg um að hreppa annað eða þriðja sæti deildarinnar en Molde mun standa uppi sem Noregsmeistari.

Brynjólfur Willumsson lék fyrstu 78 mínúturnar fyrir Kristiansund sem gerði 1-1 jafntefli við Odd og eiga Brynjólfur og félagar því enn veika von á að halda sér uppi en liðið er átta stigum frá öruggu sæti þegar fimm umferðum er ólokið




Fleiri fréttir

Sjá meira


×