Innlent

Keyrði í fyrsta sinn í snjó­komu í gær

Bjarki Sigurðsson og Tryggvi Páll Tryggvason skrifa
Paul Dao hafði aldrei keyrt í snjókomu þar til hann kom til Íslands.
Paul Dao hafði aldrei keyrt í snjókomu þar til hann kom til Íslands. Vísir/Tryggvi

Paul Dao, bandarískur ferðamaður sem nú er staddur á Akureyri, hafði aldrei nokkurn tímann keyrt í snjókomu fyrr en í gær. Nú vinnur hann að því að endurskipuleggja dvöl sína á landinu en hann er veðurtepptur fyrir norðan.

Paul er einn þeirra sem nú er veðurtepptur á Akureyri en sem stendur er rauð veðurviðvörun á Norðurlandi eystra, sem og á Austurlandi að Glettingi og Suðausturlandi. Paul keyrði til Akureyrar í gær.

„Mér var sagt þegar ég kom hingað að Austurland yrði líklega lokað vegna veðurs en ég hélt að veðrið næði ekki til Norðurlandsins. Ég hélt að ég kæmist til Mývatns og að skoða Goðafoss en það lítur ekki út fyrir að ég nái því núna því það er búið að loka mörgum vegum,“ segir Paul í samtali við fréttastofu.

Hann segir það vera pirrandi að geta ekki ferðast um landið í dag. Hann ætlar sér þó að gera gott úr þessu. Hann býst við því að fara aftur til Reykjavíkur á morgun og reyna að skoða Suðurland.

Þegar fréttastofa ræddi við hann var hann að reyna að skoða hvaða vegir væru opnir og hvenær best væri að leggja af stað. Hann mætti til Akureyrar í gær en aksturinn gekk brösuglega.

„Þetta var mjög áhugavert. Ég keyrði hingað í gærkvöldi og þá var byrjað að snjóa. Það var mjög taugatrekkjandi því ég hef aldrei keyrt í snjókomu áður,“ segir Dan.


Tengdar fréttir

Vaktin: Af­taka­veður gengur yfir landið

Aftakaveður er á Norður- og Austurlandi og búast má við vondu veðri á öllu landinu í dag. Gríðarmikilli úrkomu er spáð og talin aukin hætta á snjóflóðum- og skriðuföllum vegna hennar á Norðausturlandi og Austurlandi að Glettingi. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×