Fótbolti

Fækkar stöðugt í vinahópi Mbappés hjá PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Kylian Mbappé einangrast æ meira í leikmannahópi Paris Saint-Germain.
Kylian Mbappé einangrast æ meira í leikmannahópi Paris Saint-Germain. getty/Pedro Salado

Kylian Mbappé á sér ekki marga stuðningsmenn í leikmannahópi Paris Saint-Germain. Talið er að aðeins fjórir samherjar hans séu á hans bandi.

Mbappé skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við PSG í sumar eftir miklar vangaveltur um framtíð hans. Talið er að nýi samningurinn færi Frakkanum 650 þúsund pund í vikulaun og ákveðin völd innan PSG.

Gleðin var þó skammvinn og Mbappé er aftur orðinn ósáttur og vill fara frá PSG. Þær fréttir bárust sama dag og liðið gerði 1-1 jafntefli við Benfica í Meistaradeild Evrópu. Mbappé skoraði mark PSG úr vítaspyrnu.

Samkvæmt frétt L'Equipe á Mbappé fáa bandamenn innan raða PSG og einangrast sífellt meira. Talið er að aðeins fjórir leikmenn séu í liðinu hans Mbappé: Presnal Kimpembe, Nordi Mukiele, Hugo Ekitike og Achraf Hakimi.

Aðrir í leikmannahópi PSG ku vera orðnir pirraðir á Mbappé og þeirri sérmeðferð sem hann fær, sérstaklega Suður-Ameríkumennirnir. Meðal þeirra eru fyrirliðinn Marquinhos og Neymar.

Mbappé er ekki ánægður með nýja knattspyrnustjórann hjá PSG, Christoph Galtier, og er sérlega pirraður á því að þurfa að spila einn í fremstu víglínu.

PSG hefur gert jafntefli í síðustu þremur leikjum sínum. Næsti leikur liðsins er gegn Marseille á sunnudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×