Innlent

Bein út­sending: Bera saman bækur um raka­skemmdir og myglu

Tinni Sveinsson skrifar
Kársnesskóli í Kópavogi var rifinn fyrir nokkrum árum vegna myglu.
Kársnesskóli í Kópavogi var rifinn fyrir nokkrum árum vegna myglu. Vísir/Vilhelm

Mygla hefur mjög verið í deiglunni síðustu misseri og hafa mörg fyrirtæki og stofnanir þurft að flýja húsnæði eftir að upp hefur komið mygla í þeim.

Hvað getum við lært af Finnum? Hver er staðan hjá ríki og borg? Þessum og fleiri spurningum verður reynt að svara á ráðstefnu um rakaskemmdir og myglu í Háskólanum í Reykjavík.

Ráðstefnan hefst klukkan 13 og er hægt að fylgjast með henni í spilaranum hér fyrir neðan. Fjöldi erinda verður fluttur, meðal annars um reynslu Reykjavíkurborgar, ríkisins og Landspítalans.

Dagskrá

  • 13:00 Opnun: Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra

  • 13:15 Fundarstjóri setur fram markmið málþings

  • 13:20 Hvað getum við lært af Finnum? „Causes and assessment of moisture related IAQ problems in Finland": Miia Pitkaranta PhD microbiology, Vahanen

  • 14:05 Reynslusaga heimilislæknis: Una Emilsdóttir sérnámslæknir í atvinnu- og umhverfislæknisfræði við Holbæk sjúkrahúsið í Danmörku.

  • 14:25 Innivistarmál í Reykjavíkurborg: Rúnar Ingi Guðjónsson, deildarstjóri viðhalds fasteigna Reykjavíkurborgar

  • 15:00 Staðan hjá ríki og borg: Sverrir Jóhannesson, eignastjóri FSRE

  • 15:15 Landspítali Háskólasjúkrahús: Guðmundur Þór Sigurðsson, rekstrarstjóri fasteigna og lóða, LSH

  • 15:30 Rakaástand bygginga, Askur: Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir, sérfræðingur í innivist, EFLA


  • 15:45 Pallborðsumræður: Dr. Björn Marteinsson, arkitekt og verkfræðingur - Böðvar Bjarnason, tæknifræðingur, EFLA - Indriði Níelsson, verkfræðingur, Verkís - Kristinn Alexandersson, tæknifræðingur, VSÓ - Margrét Harðardóttur arkitekt, Studio Granda

    Fundarstjórn: Ólafur Wallevik, prófessor í iðn-og tæknifræðideild Háskólans í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×