Vlahovic hetja Juventus í Derby della Mole

Atli Arason skrifar
Dusan Vlahovic, leikmaður Juventus, fagnar sigurmarki sínu gegn Torino.
Dusan Vlahovic, leikmaður Juventus, fagnar sigurmarki sínu gegn Torino. Getty Images

Juventus vann 0-1 útisigur á nágrönnum sínum í Torino í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Viðureign þessara liða er oftast nefnt Derby della Mole, þar sem bæði lið eru staðsett í Tórínó borg í norðvestur Ítalíu.

Dusan Vlahovic, leikmaður Juventus skoraði eina mark leiksins á 74. mínútu þegar hann stýrði knettinum í netið eftir hornspyrnu gestanna.

Juventus lyftir sér upp fyrir Inter í 7. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með sigrinum á meðan Torino er í 11. sæti með 11 stig. Bæði lið hafa leikið tíu leiki í deildinni á meðan flest öll lið deildarinnar hafa leikið níu.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira