Í Íslandi í dag, sem má sjá hér að ofan, var greint frá sigurvegara úttektarinnar. Umfjöllun hefst á fimmtándu mínútu.
„Ég hef verið að fara á staðina, kíkja á verðið, safna saman öllum vinningum í boði, merkja þá, og síðan hvað bjórinn kostar á hverjum stað og skotið á hverjum stað. Ég skoða meðalgróðann á hverjum snúningi, síðan skoða ég líkurnar á sigri og síðan líkurnar á að hjólið sé heitt; þegar þú færð tvöfaldan vinning. Það eru sumir staðir sem koma töluvert betur út en aðrir,“ segir Júlíus.
Og ekki er von nema spurt sé: Hvernig hvarflar að manni að leggja svona mikið á sig til að koma upp svona Excel-skjali? Júlíus: „Maður verður bara að leggja þetta fram fyrir náungann. Ég vil bara að allir nemendur geti lifað ódýru lífi og djammað vel.“
Fjöldi lukkuhjóla er kominn upp á börum Reykjavíkur en talið er að það fyrsta hafi verið sett upp á English Pub skömmu eftir efnahagshrun. Síðan hafa margir fylgt fordæminu og boðið viðskiptavinum að taka þessa sakleysislegu áhættu.
Öllu jöfnu kostar snúningurinn á þriðja þúsund. Júlíus segir það sæta tíðindum í úttektinni, að það er aðeins á tveimur stöðum sem kaupandinn kemur að jafnaði út í tapi við að snúa hjólinu. Þeir tveir staðir eru nefndir í innslaginu, en athugasemd hefur að vísu borist ritstjórn um að snúningur á Dönsku kránni kosti í raun minna en látið er uppi með, og samkvæmt breyttum útreikningi er því hagstætt að snúa þar hjólinu.