Innlent

Eldur kviknaði í bíl á Hring­braut

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Slökkvistarf gekk mjög vel.
Slökkvistarf gekk mjög vel. Karlotta Lind Skúladóttir

Eldur kviknaði í Toyotu-bifreið á Hringbraut rétt eftir hálf sex síðdegis í dag. Steinþór Darri, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir að vel hafi gengið að slökkva eldinn.

„Það tók tvær mínútur hjá slökkviliðinu þegar þeir voru lentir,“ segir Steinþór Darri. Sjúkrabíll var sendur á vettvang til öryggis en enginn slasaðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×