Glysgirni huldufólks veitti Hildi Yeoman innblástur Elma Rut Valtýsdóttir skrifar 4. nóvember 2022 14:30 Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman frumsýnir glænýja línu, Hidden People, nú um helgina. Saga Sig Litadýrð, glans og glimmer einkenna nýja línu Hildar Yeoman, Hidden People, sem frumsýnd er þessa dagana á Airwaves. Hátíðarhöld hófust í verslun Yeoman á Laugarveginum í gær þegar tónlistarkonan JFDR spilaði fyrir gesti.
Línan Hidden People er innblásin af huldufólki og litum og áferð íslenskrar náttúru. „Enda eru til margar sögur af glæsileika og glysgirni huldufólksins sem við sækjum innblástur til,“ segir Hildur sem hannaði línuna í miðjum heimsfaraldri þegar allir voru að ferðast innanlands og spá meira í nærumhverfinu, íslenskri náttúru og þjóðsögum. Með þessari línu kynnir Hildur ný form og nýja stíla til sögunnar, ásamt því að hafa notast mikið við endurunnin efni við hönnun og framleiðslu hennar. „Við höfum verið að leita ýmissa leiða til þess að vera sem umhverfisvænust. Við framleiðum til að mynda ýmsan fatnað úr endurunnu plasti sem er unnið í þráð sem gerð eru úr endurunnu polyester efni. Helsta sem skiptir þó máli er að við framleiðum hjá fjölskyldufyrirtæki sem gerir fatnað fyrir okkur í litlu magni og passar að efnin fari ekki til spillis.“ Förðunarfræðingurinn Ísak Freyr Helgason sá um förðun fyrir myndatökuna.Saga Sig Fagna línunni um helgina Ljósmyndarinn Saga Sig myndaði nýju línuna og fór myndatakan fram í íslenskri náttúru. Við myndatökuna var notast við bæði íslenskar sem og erlendar fyrirsætur. Þeirra á meðal var fyrirsætan Molly Constable, rísandi stjarna í fyrirsætuheiminum, sem kom alla leið frá New York. „Við höfum fylgst með Molly lengi og vorum mjög spennt að hún væri til í að koma til Íslands og taka þátt í þessu verkefni með okkur og erum ótrúlega ánægð með afraksturinn.“ Línunni verður fagnað með pompi og prakt í verslun Yeoman nú um helgina. Fögnuðurinn hófst í gær þegar tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, betur þekkt sem JFDR, tók lagið fyrir fullu húsi. View this post on Instagram A post shared by Marcus Getta (@marcusgetta) Stemning og falleg föt á Laugarveginum um helgina Herlegleitin halda svo áfram í kvöld þegar hljómsveitin Cyber stígur á stokk klukkan 18:30. Á morgun mun svo engin önnur en DJ Dóra Júlía þeyta skífum fyrir gesti verslunarinnar á milli klukkan 14 og 16. Áhugasamir geta skoðað línuna betur á glænýrri heimasíðu Yeoman eða mætt í verslunina við Laugarveg 7 nú um helgina. Fyrirsætan Molly Constable kom alla leið frá New York til þess að vera í myndatöku fyrir línuna.Saga Sig Línan er innblásin af huldufólki og litum og áferð íslenskrar náttúru.Saga Sig
Tíska og hönnun Airwaves Tengdar fréttir Venus Williams valdi Hildi Yeoman fyrir Glamour viðtal Tennisdrottningin Venus Williams prýðir nýjustu forsíðu tímaritsins Glamour. Það vakti sérstaka athygli okkar á Lífsinu að hún klæddist flíkum frá íslensku versluninni Yeoman í viðtali við Glamour. 7. október 2022 18:59 Allt í blóma hjá Hildi Yeoman Hildur Yeoman stóð fyrir sýningunni In Bloom sem var partur af HönnunarMars og fór fram í Höfuðstöðinni. Merkið hefur verið áberandi bæði innan og utan landsteinanna og er þekkt fyrir draumkennd prent, falleg snið og litadýrð. 9. maí 2022 15:30 Hönnun Hildar Yeoman vakti athygli á tískuvikunni í London Söngkonan Kehlani vakti athygli í hönnun Hildar Yeoman í opnunarhófi tískuvikunnar í Bretlandi, London Fashion Week. Fjölmiðlar hafa fjallað um fataval bandarísku stjörnunnar þetta kvöld og birtust meðal annars myndir af henni í settinu á vef Vogue. 18. september 2021 21:01 Mest lesið Sviptir hulunni af þrettánda barni Musks Lífið Baltasar, Sunneva og Kilja litla njóta lífsins Lífið Þau komust áfram í úrslit Söngvakeppninar Lífið Krakkatían: Eurovision, Góa og Gettu betur Lífið Þórdís Björk selur höllina á Arnarnesi Lífið Dúbaí-súkkulaðið umtalaða: „Þetta er galin sala“ Lífið „Við höfum það fyrir sið að faðmast í að lágmarki sjö sekúndur á hverjum morgni“ Lífið samstarf Barnaníðsmáli Jay-Z vísað frá Lífið „Ég er búin að sætta mig við að ég mun líklega aldrei fá nein svör“ Lífið Fréttatía vikunnar: Mismæli, sakborningar og Elon Musk Lífið Fleiri fréttir Kvenmannsbuxur sem áttu að fara til Chalamet Súrrealískt að ganga tískupallinn á Times Square Þýðingarmikill klæðnaður Kendrick Lamar Rokkaði tíu milljón króna hálsmen Gaman að sjá íslenska hönnun skína í dönsku tískusenunni Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Halla forseti rokkar svart og hvítt Best klæddu, flippuðustu og fáklæddustu á Grammy Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Steldu meðgöngustílnum af Tönju Ýr Patrik í hálfrar milljón króna skíðagalla Skemmtilegast klæddu á Golden Globe Halla í peysufötum langömmu sinnar Sjá meira
Venus Williams valdi Hildi Yeoman fyrir Glamour viðtal Tennisdrottningin Venus Williams prýðir nýjustu forsíðu tímaritsins Glamour. Það vakti sérstaka athygli okkar á Lífsinu að hún klæddist flíkum frá íslensku versluninni Yeoman í viðtali við Glamour. 7. október 2022 18:59
Allt í blóma hjá Hildi Yeoman Hildur Yeoman stóð fyrir sýningunni In Bloom sem var partur af HönnunarMars og fór fram í Höfuðstöðinni. Merkið hefur verið áberandi bæði innan og utan landsteinanna og er þekkt fyrir draumkennd prent, falleg snið og litadýrð. 9. maí 2022 15:30
Hönnun Hildar Yeoman vakti athygli á tískuvikunni í London Söngkonan Kehlani vakti athygli í hönnun Hildar Yeoman í opnunarhófi tískuvikunnar í Bretlandi, London Fashion Week. Fjölmiðlar hafa fjallað um fataval bandarísku stjörnunnar þetta kvöld og birtust meðal annars myndir af henni í settinu á vef Vogue. 18. september 2021 21:01