Óli Palli poppar Skagann upp Jakob Bjarnar skrifar 4. nóvember 2022 13:37 Óli Palli hér ásamt hinum óviðjafnalega Herbert, sem er mættur uppá Skaga og búinn að stilla upp. Fjölmargir listamenn munu troða upp á Heimaskaga, en tónlistarmennirnir troða upp í heimahúsum og víðs vegar um bæinn. aðsend Skaga- og útvarpsmaðurinn Ólafur Páll Gunnarsson, betur þekktur sem Óli Palli, hefur verið í önnum við að skipuleggja mikla tónlistarhátíð í sínum heimabæ.
Þegar litið er yfir dagskrá kemur á daginn að um sannkallaða músíkveislu eru að ræða. Tónlistarmennirnir sem fram koma eru ekki af verri endanum.Vísir hringdi í Óla Palla og spurði einfaldlega hvað hann væri að gera? „Þetta er mjög einfalt. Ef það er ekki gaman, þá er leiðinlegt og þá er ekki skemmtilegt. Þetta vita allir. Ég er bara að reyna að gera skemmtilegt í mínum litla heimabæ. Það er menningarhátíð á Akranesi þessa dagana sem heitir Vökudagar. Þetta er 20 ára gömul hátíð sem er alltaf að stækka; myndlistarsýningar og aðrir tónleikar. Lay Low mun troða upp á Rakarastofu Hinna, sem Óli Palli segir minnsta hús á Akranesi.aðsend Þetta er innlegg í það, Akranesútgáfa af því sem við, ég og fleiri svo sem Kiddi kanína, höfum verið að gera í Hafnarfirði 2014. Sem hefur heppnaðast gríðarlega vel,“ segir Óli Palli. Hann vill leggja ríka áherslu á að hann sé einn skipuleggjenda, ekki að hann sé að standa fyrir þessu í einhverju egóflippi. Ekki hallærislegt í neinum samanburði Óli Palli er þekktur fyrir dagskrárgerð sína í útvarpi þar sem hann hefur áratugum saman fjallað um popp og rokk. Og þá er það þekkt að hann hefur sótt fjölda risa tónleikahátíða úti í hinum stóra heimi reglulega nú í mörg herrans ár. Verður þetta ekki alltaf eilítið hallærislegt í þeim samanburði? „Nei, alls ekki,“ hlær Óli Palli. „Sko, ég sá á netinu um daginn að hljómsveitin Kiss, sem var uppáhalds hljómsveitin mín þegar ég var 12 ára, að hún var að spila í einhverju svona prívatpartíi fyrir eitthvað fyrirtæki. Hundrað manns. Og það hlýtur að hafa verið geggjað.“ Óli Palli segir uppleggið vera tónleika fyrir fáa, í litlu rými, og það séu tónleikar sem bragð er að fyrir þá sem sjá. Þetta er bara svona. Páll Óskar sagði allt fyrir ástina, við segjum allt fyrir nándina. Þetta eru nándartónleikar. Ég fór á Airwaves í gær og það geggjað. Þar sá ég þrjú af atriðunum sem verða á HEIMAskagahátíðinni á morgun: Júníus Meyvant, Listasafnið og troðfullt, hann verður að spila í stofu hér nálægt heimili mínu. Ég sá líka Vintage Caravan sem var að spila tónleika númer 80 í röð og svo spila þeir í stofu neðar í götunni og í Blikksmiðju Guðmundar (það spila allir tvisvar) og svo var Una Torfa, frábær músíkant, í Iðnó. Troðfullt.“ Frábærir tónlistarmenn í návígi Óli Palli segir að þeir sem mæta á hátíðina eigi þess kost að sjá frábæra tónlistarmenn í návígi. „Hörður Torfa er spenntur en hann hefur ekki spilað í sjö ár, LayLow ætlar að spila á rakarastofu Hinna, sem er eitt minnsta hús á Akranesi. Og þannig má áfram telja. Við erum búin að vera allt árið að hugsa hvaða listamenn við viljum helst fá. Og erum afar stolt af því hverjir munu spila.“ Óli Palli segir svo frá að sjálfur Herbert hafi mætt í gær til að stilla upp en hann er mikill fagmaður og leggur uppúr því að „sound-ið“ sé eins og best verður á kosið. Aðrir listamenn sem ekki hafa verið nefndir eru Guðrún Gunnars, Tíbrá, Djäss og Guðrún Árný.
Akranes Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Íslenskur leiklistarnemi upplifði óraunverulega stund í New York Lífið Björn keypti sex hundruð ára höll í Frakklandi og ætlar að gera hana upp Lífið Siðlaus maður étur skít og öðlast samkennd Lífið Fegurðardrottning fékk nýtt herbergi Lífið Fólk grípi til sænsku dauðhreinsunarinnar fyrr en ella Lífið Íbúðin gjörbreyttist eftir að hafa fært eldhúsið Lífið „Ef við erum ekki að fara fá matareitrun núna þá er ekki hægt að fá matareitrun“ Lífið Sunneva nefndi son Jóhönnu Lífið Tveggja barna foreldrar eftir erfiða áhættumeðgöngu Lífið Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Fullt út úr dyrum þegar Eiríkur Bergmann kynnti ferðafélagann Tínu Hvað gerist þegar Laddi hittir Eirík Fjalar, Skrám og Elsu Lund? „Alltaf að fylgja hjartanu í stað þess að velja einföldu leiðina“ Usli og glæsileiki á Kjarvalsstöðum Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Stappfullt á eina stærstu menningarhátíð ársins Sjóðheitt menningarrými á Baldursgötu Asifa Majid hlýtur Vigdísarverðlaunin 2024 Bjarni Ben fagnaði 140 ára afmæli Listasafns Íslands Han Kang hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? „Þetta er móðgun gegn Íslandi“ Henti listaverkinu í ruslið Kúltúrkettir landsins létu sig ekki vanta í Portið „Hrátt háþróað krass, langt leitt krot“ Bjóða landsmönnum nauðbeygð til messu Allt í banönum á Brút Bríet lét sig ekki vanta á sýningaropnun Ynju Blævar Út um allar koppagrundir Alþingis: „Froðan flæðir endalaust, það er bara froða froða“ Sjá meira