Fótbolti

Brotnaði niður þegar hún ræddi um skilnaðinn við Mauro Icardi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wanda Nara og Mauro Icardi meðan allt lék í lyndi.
Wanda Nara og Mauro Icardi meðan allt lék í lyndi. getty/Emilio Andreoli

Wanda Nara brotnaði niður í ítölskum sjónvarpsþætti þegar hún ræddi skilnaðinn við fótboltamanninn Mauro Icardi.

Þau Wanda og Mauro skildu í september eftir mjög svo stormasamt samband. Þau voru saman í níu ár og eiga tvær dætur saman.

Auk þess að vera eiginkona Mauros var Wanda umboðsmaður hans. Hann rak hana hins vegar eftir skilnaðinn. Wanda ræddi um hann í ítölskum sjónvarpsþætti á dögunum þar sem hún felldi tár.

„Þetta er sárt því ég trúi á eilífa ást. Ég trúi á það að eldast með manninum sem ég vel,“ sagði Wanda.

„En stundum kemur lífið þér á óvart og þú verður að halda áfram. Þú verður alltaf að leita hamingjunnar og sýna börnunum að hvað svo sem kemur verður þú alltaf að vera á höttunum eftir hamingjunni.“

Wanda sagðist vita allt um Mauro, meðal annars meint framhjáhald hans. „Það er samt ekki rétt að ég hafi staðið hann að verki, leitað hans og skoðað símann hans. Við settumst niður og hann sagðist vilja segja mér þetta. Mauro er hreinskilinn og segir sannleikann þótt hann geti verið sár. Og hann sagði mér að hann hefði hitt aðra konu.“

Mauro skaut föstum skotum á Wöndu og sagði að hún væri aðhlátursefni eftir að hún sást kyssa rúmlega tvítugan rappara í myndbandi hans.

Mauro leikur núna með Galatasaray í Tyrklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×