Erlent

Hita­met falla um Evrópu

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Hiti hefur mælst yfir meðallagi hérlendis.
Hiti hefur mælst yfir meðallagi hérlendis. Vísir/Vilhelm

Hlýtt hefur verið í Evrópu á síðustu misserum, hæsti hiti í nóvembermánuði í Finnlandi frá upphafi mældist í Helsinki á dögunum og hafa mikil hlýindi verið í Bretlandi. Hiti hérlendis mælist yfir meðallagi miðað við árstíma. 

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur greindi frá þessu í Bítinu í morgun en hann segir október hafa verið hlýrri en gengur og gerist.

„Hitinn núna þessa dagana er svona sex til átta gráðum yfir meðallagi árstímans, eitthvað svoleiðis. Hann var að mælast ellefu og tólf stig á nokkrum stöðum fyrir norðan í gær,“ segir Einar.

Tíðin hafi verið mjög mild frá því um 10. október og ekki sjái fyrir endann á því.

„Þetta er ekki bara hér sem þetta hefur verið svona, það voru sett mjög athyglisverð hitamet á meginlandi Evrópu um helgina. Til að mynda aldrei mælst svona hár hiti á Bretlandseyjum þetta seint haustsins eins og gerði, það fór í rúmar tuttugu gráður í Wales,“ segir Einar.

Hann nefnir einnig að hitamet hafi fallið í Finnlandi. Hæsti hiti í nóvember frá upphafi hafi mælst hjá veðurathugunarstöð í Helsinki en þar hófust mælingar fyrir árið 1900.

Viðtalið við Einar veðurfræðing má hlusta á í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Guardian greindi frá því fyrr í mánuðinum að margar Evrópuþjóðir hefðu upplifað hlýrri októbermánuð en vanalega. Í þeim hópi voru meðal annars Frakkland, Austurríki, Slóvenía og Sviss en í þeim löndum var hitamet slegið.

Sænski miðillinn SVT greindi einnig frá því á dögunum að hitamet hefði fallið þar í landi en aldrei hefur hiti mælst jafn hár, jafn seint á árinu. Hitametið féll á þremur stöðum í Svíþjóð þann 12. nóvember síðastliðinn og fór hitinn upp í 16,7 gráður. 

Á meðan hitamet voru slegin í Evrópu á að hafa snjóað á hálendi Brasilíu í fyrsta skipti á þessum árstíma í hundrað ár og snörp hitalækkun gekk yfir ákveðin svæði í Bandaríkjunum. Sem dæmi má nefna að í Salt Lake City í Utah féll hámarkshitinn úr 25 gráðum þann 21. október niður í sjö gráður þann 19. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×