Dúndurdiskó Bragi Valdimar hlaut verðlaun Jónasar Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 16. nóvember 2022 14:23 Lilja Dögg Alfreðsdóttir veitti Braga Valdimar verðlaun Jónas Hallgrímssonar í dag. Golli Bragi Valdimar Skúlason hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar í dag á degi íslenskrar tungu. Verðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur með sérstökum hætti unnið íslenskri tungu gagn í ræðu eða riti, með skáldskap, fræðistörfum eða kennslu og stuðlað að eflingu hennar, framgangi eða miðlun til nýrrar kynslóðar.
Í rökstuðningi ráðgjafanefndarinnar segir: „Tungumál slitna ekki við notkun heldur styrkjast. Til þess að íslenska haldi velli þarf að pönkast í henni, leika sér með hana, snúa upp á hana og út úr henni. Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar hlýtur að þessu sinni skáld, grínisti, auglýsingamaður og uppfræðari. Textar hans eru sungnir við brúðkaup, jarðarfarir og skírnir, kyrjaðir í tjaldútilegum og eru jafn ómissandi hluti af jólahaldi Íslendinga og ítölsk dægurlög. Hann er eftirlæti unglinga og vinnustaðagrínara, kennara og kaffibrúsakarla. Um hann má segja að hann sé dúndur, hann sé diskó, það sé mikið í hann lagt! Verðlaunin í ár hlýtur Bragi Valdimar Skúlason sem hefur unnið markvisst að því að vekja áhuga fólks á íslenskri tungu og ræktað hana á óvenjumörgum sviðum. Hann er ekki aðeins skáld, textahöfundur og þýðandi heldur hefur hann gert vinsæla sjónvarpsþætti þar sem viðfangsefnið er tungumálið er sjálft. Að auki hefur hann lagt til efni á vef Baggalúts og unnið að auglýsingagerð.“ Hátíðleg athöfn í Fellaskóla Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra veitti verðlaunin og fór afhendingin fram við hátíðlega athöfn í Fellaskóla í dag. Vinningshafar ásamt Lilju AlfreðsdótturGolli Nemendur sýndu verðlaunaatriði sitt af sviðslistahátíðinni Skrekk, en þau urðu í öðru sæti fyrr í vikunni. „Í Fellaskóla hefur verið unnið að fyrirmyndarverkefninu Okkar mál-samstarf um menningu, mál og læsi í Fellahverfi. Verkefnið hefur það að meginmarkmiði að auka samstarf skóla í Fellahverfi og stofnana í Breiðholti. Leiðarljósið er að efla félagslegan jöfnuð, námsárangur og vellíðan barna í hverfinu,“ segir í tilkynningu frá menningar-og viðskiptaráðuneytinu. Tungumálatöfrar fengu sérstaka viðurkenningu Verkefnið Tungumálatöfrar á Ísafirði hlaut sérstaka viðurkenningu dags íslenskrar en verkefnið býður upp á upp á málörvandi umhverfi í gegnum skapandi kennsluaðferðir fyrir fjöltyngd börn. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Fellaskóla í dag, þar sem börn úr skólanum sýndu atriði sitt úr Skrekk.Golli Í rökstuðningi ráðgjafanefndar segir um Tungumálatöfra: „Tungumálatöfrar, Tungumálatöfrar, í takti tölum við saman,“ má heyra sungið af kór barna og fullorðinna á myndbandi sem finna má á netinu. Það var tekið upp á sumarnámskeiði fyrir börn á Ísafirði en þar saman komu krakkar á aldrinum 5–11 ára til að læra íslensku í gegnum listsköpun og leik. Námskeiðið hefur verið haldið frá árinu 2017 og er ætlað íslenskum börnum sem hafa fæðst erlendis eða flutt til annarra landa og börnum af erlendum uppruna sem hafa sest að hér á landi. Börnin eiga það því sameiginlegt að vera fjöltyngd og um leið og þau eru örvuð til að nota íslensku er þeim bent á þann styrk sem felst í því að kunna fleiri tungumál en eitt. Í lok námskeiðsins hefur verið gengin tungumálaskrúðganga á Ísafirði en einnig hafa aðstandendur þess staðið fyrir málþingum. Komið hefur fram að þeir vonist eftir því að Tungumálatöfrar á Ísafirði verði uppspretta þekkingar sem geti nýst við þróun námsefnis víðar á landinu. Tungumálatöfrar hljóta sérstaka viðurkenningu fyrir stuðning við íslenska tungu vegna frumkvöðlastarfs á sviði íslenskukennslu. Um leið á viðurkenningin að vera Tungumálatöfrum hvatning til frekari rannsókna og uppbyggingarstarfs. Íslenskan er okkar allra „Í dag kynnast börn, ungmenni, nýir málhafar og aðrir um allt land deginum og tungumálinu á nýjan og ólíkan hátt. Deginum sem fagnar tungumáli okkar allra. Tungumálið er lykillinn að samfélaginu, hvort sem er í lestri bóka, í samfélagsumræðu, á netmiðlum eða í leik og starfi,“ er haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra í tilkynningunni frá ráðuneytinu „Íslenskan er í fyrirrúmi í dag, en hún á alltaf að vera það. Við skulum fagna þessum degi saman og standa saman vörð um íslenskuna. Við skulum þróa hana saman og kætast yfir því að hún á bjarta framtíð fyrir sér ef rétt er haldið á spöðunum. Íslenskan er okkar allra. Til hamingju með daginn í dag," segir Lilja Dögg.
Íslensk tunga Ísafjarðarbær Reykjavík Skóla - og menntamál Mest lesið „Mig langaði að segja þessar sögur“ Lífið Kaflaskil í tískunni þegar hann var tíu ára Tíska og hönnun „Á svona tímapunkti vantar mann að geta tengt við einhvern“ Lífið Krakkatían: Óvæntur gestur, söngleikur og dalmatíuhundar Lífið Eignuðust stúlku með hjálp staðgöngumóður Lífið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið Ljósbrot hlaut aðalverðlaun í Gautaborg Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira