Tesla Model S hlaut á dögunum fimm stjörnu öryggiseinkunn há Euro NCAP. Euro NCAP gerði prófanir á nýjustu útgáfu af Model S, í samræmi við nýjustu og ströngustu prófunarstaðlana frá 2020-2022, þar sem geta ökutækisins til að vernda fullorðna einstaklinga, börn og gangandi vegfarendur er í forgangi ásamt mat á hegðun til að forðast árekstra og aðra öryggisaðstoð.
Innra rými í uppfærðum Model S.
Helstu niðurstöður Model S voru eftirfarandi:
98% einkunn í öryggisaðstoð ökutækis.
91% einkunn í vernd fyrir börn.
94% einkunn í vernd fyrir fullorðna einstaklinga.
Hæsta einkunn sem gefin er fyrir ákomu utanaðkomandi hlutar á ökutækið.
Hæsta einkunn sem gefin er fyrir björgun bílsins eftir slys, og útkomu eftir að slys hefur átt sér stað.