Eftirskjálfti að stærð 3,8 mældist klukkan 20:07. Annar skjálfti, 3,5 að stærð, mældist klukkan 20:11. Stærstu skjálftarnir fundust í Skaftártungum en aðrar tilkynningar hafa ekki borist veðurstofunni.
Skjálftarnir eru grunnir og staðsettir austarlega í Kötluöskjunni, að því er fram kemur í tilkynningu. Síðan klukkan 20:30 hefur frekari jarðskjálftavirkni ekki mælst.

Veðurstofan áréttar að skjálftar séu algengir í Kötluöskjunni. Skjálftarnir séu þó þeir stærstu sem mælst hafa síðan í júlí.
„Töluverð skjálftavirkni hefur verið í ár samanborið við árin á undan, en er þó minni en virknin á árunum 2016-2017,“ segir enn fremur. Veðurstofan er með sólarhringsvakt á jarðskjálftavirkni.
Fréttin hefur verið uppfærð.