Annars vegar er um að ræða ritið Þingvellir í íslenskri myndlist en í bókinni er að finna ítarlegt yfirlit um íslenska myndlist tengda Þingvöllum og geymir hún 269 Þingvallamyndir eftir 104 listamenn. Ritstjórar eru Aðalsteinn Ingólfsson og Sverrir Kristinsson.
Hins vegar er um að ræða ritið Íslenskar bókmenntir - saga og samhengi, sem er nýtt yfirlitverk um sögu íslenskra bókmennta frá landnámi til tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Í tveimur bindum er sagan rakin á knappan hátt í samhengi við strauma og stefnur hvers tíma. Sex bókmenntakennarar við Háskóla Íslands mynduðu ritstjórn undir forystu Ármanns Jakobssonar.
„Bókmenntafélagið hefur um langt árabil átt sér þann draum að gefa út veglega listaverkabók með myndum frá Þingvöllum eftir helstu myndlistarmenn þjóðarinnar. Þá hefur félagið lengi haft mikinn hug á því að gefa út nútímalegt yfirlitsrit um sögu og samhengi íslenskra bókmennta frá landnámi til líðandi stundar,“ sagði Jón Sigurðsson við athöfnina í gær.
„Ég vil ítreka þakkir Bókmenntafélagsins til Alþingis fyrir ómetanlegan stuðning við útgáfu fullveldisbókanna. Við þökkum forseta Alþingis fyrir þetta höfðinglega boð, sem gefur tækifæri til þess að kynna þessum ágæta hópi bækurnar tvær í húsakynnum Alþingis,“ sagði hann enn fremur.
Alþingi samþykkti sumarið 2018 einróma tillögu þáverandi forseta Alþingis, Steingríms J. Sigfússonar, um verkefnið og komu bæði ritin út í ár.
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, veitti bókunum viðtöku í gær en Jón Sigurðsson, fráfarandi forseti Hins íslenska bókmenntafélags, afhenti honum bókina Þingvellir í íslenskri myndlist og Ármann Jakobsson, forseti félagsins, afhenti honum bókina Íslenskar bókmenntir - saga og samhengi.